Vilja fund heilbrigðisnefndar

Mynd úr myndasafni.
Mynd úr myndasafni. Júlíus Sigurjónsson

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í heilbrigðisnefnd fara fram á að heilbrigðisnefnd komi sem fyrst saman. Fulltrúarnir, þau
Guðlaugur Þór Þórðarson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, telja að ræða þurfi málefni Landspítala Háskólasjúkrahúss í ljósi ummæla ráðherra um að færa þjónustuna aftur til ársins 2004.

Einnig þurfi að ræða málaflokka á vegum Sjúkratrygginga Íslands, en ríkisstjórnin hefur ekki enn tekið ákvörðun um það hvernig ná á fram milljarða sparnaði í þeim málaflokkum eins og boðað var í fjárlögum.

Þau Guðlaugur og Ragnheiður telja ennfremur að ræða þurfi undirbúning flutnings verkefna frá velferðarráðuneyti til Sjúkratrygginga Íslands sem á að koma til framkvæmda um áramót. Farið er fram á að velferðarráðherra, forstjóri LSH og forstjóri Sjúkratrygginga Íslands mæti fyrir nefndina.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert