Ræddu viðbrögð við öskuskýjum

Frá fundi samgönguráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í Reykjavík í dag.
Frá fundi samgönguráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í Reykjavík í dag. mbl.is/Innanríkisráðuneytið

Samgönguráðherrar Norðurlandanna og starfsbræður þeirra frá Eystrasaltsríkjunum sátu fund í Reykjavík í dag þar sem þeir ræddu ýmis sameiginleg samgöngumálefni. M.a. var rætt um áhrif eldsumbrota á flugumferð og hvernig bregðast mætti við truflun af völdum öskuskýja.

Auk Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra tóku þátt í fundinum ráðherrarnir Merja Kyllönen frá Finnlandi, Catharina Elmsäter-Svård frá Svíþjóð, Juhan Parts frá Eistlandi, Veronica Tornroos frá Álandseyjum og Arunas Staras frá Litháen. Auk þeirra sátu fundinn fulltrúar samgönguráðuneyta Danmerkur, Noregs og Lettlands, að því er fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins.

Meðal umræðuefna á fundinum var umfjöllum um áhrif eldsumbrota á flugumferð og hvernig bregðast megi við og hvernig háttað er stjórnun flugumferðar þegar öskuský trufla. Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir og Reynir Sigurðsson frá Flugmálastjórn ásamt Ásgeiri Pálssyni frá Isavia og Árna Snorrasyni veðurstofustjóra fræddu fundarmenn um málefnið og í framhaldinu urðu nokkrar umræður. Eftir fundinn heimsóttu fundarmenn flugstjórnarmiðstöðina á Reykjavíkurflugvelli og kynntu sér starfsemi hennar.

„Þá var fjallað um norræna aðgerðaáætlun um umhverfisvæna samgöngustefnu en  Norðurlandaráð samþykkti á fundi í Helsinki árið 2008 tillögu sem lögð hefur verið fyrir ríkisstjórnir Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Gerir hún meðal annars ráð fyrir að ríkin auki samvinnu sína á sviði rannsókna, leggi áherslu á notkun umhverfisvænna flutningaleiða og hvetji til aukinna flutninga á sjó og með járnbrautum," segir ráðuneytið.

Við lok fundarins undirrituðu ráðherrar Noregs, Finnlands, Lettlands og Eistlands yfirlýsingu um áframhaldandi þróun North European Functional Airspace Block (NEFAB), starfræns flugleiðsöguumdæmi landanna, en umdæmið mun byggja á reglum ESB og stefna að aukinni samræmingu og hagræðingu í flugleiðsöguþjónustu landanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert