Jörð skelfur við Kötlu
Mýrdalsjökull. Katla er í baksýn. mbl.is
Jörð hefur skolfið í kringum Kötlu undanfarna daga og virðist lítið lát á skjálftavirkni. Ein skjálftahrinan reið yfir nú í hádeginu og stóð í um hálftíma. Skjálftarnir eru þó flestir litlir eða um eða kringum á 1 stig en sá stærsti þó um 1,8 stig að sögn Hjörleifs Sveinbjörnssonar, jarðfræðings hjá Veðurstofunni. og voru um 20 mínútur frá síðasta skjálfta þegar mbl.is ræddi við hann.
Hann segir Kötlu óútreiknanlega þegar kemur að því að spá fyrir um gos en skjálftavirkni hafi aukist gríðarlega eftir hlaupið í Múlakvísl í sumar. Í ár hafi mælst um 800 skjálftar á móti 300 yfir allt síðasta ár. Meiri virkni sé nú innan öskjunnar en alla jafna. Það þurfi þó ekki að þýða að það fari að gjósa.
Sé virknin nú borin saman við hlaup í Múlakvísl árið 1955 þá hafi virknin á þeim tíma verið vegna kvikuinnskots sem hafi valdið meiri jarðhita, brætt af sér ís og valdið hlaupinu. Þá hafi Katla ekki gosið. Innskot gæti verið að valda þessum breytingum nú en það sé þó erfitt að segja nákvæmlega hvað sé að gerast.
Hjörleifur segir vel fylgst með Kötlu og búið sé að koma fyrir fleiri skjálftamælum og búnaði til að fylgjast með á svæðinu. Aukin skjálftavirkni þurfi ekki að vera ávísun á eldgos, þar þurfi fleiri breytur að spila saman.
AP-fréttastofan hefur eftir Páli Einarssyni við Háskóla Íslands að vel sé fylgst með Kötlu, þar sem hún sé það eldfjall sem fólk óttist helst. Hins vegar sé eðlilegt að skjálftavirkni mælist við Kötlu. Það sé þó óvenjulegt að sjá hrinur smærri jarðskjálfta með allt niður í tíu mínútna millibili.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Jörð skelfur við Kötlu/engin óskar þess,en svo er þetta,og við ... -
Ásdís Sigurðardóttir EKKI ELDGOS PLÍS !!!!!
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 6. september 2011, Innlent Flogið yfir Kötlu
- Þriðjudagur, 6. september 2011, Innlent Eftirlit aukið með Kötlu
- Miðvikudagur, 25. apríl 2012, Innlent Enn skelfur við Hellisheiðarvirkjun
- Mánudagur, 12. september 2011, Innlent Skjálftar í Kötlu í nótt
- Miðvikudagur, 7. september 2011, Innlent Rólegra við Kötlu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































