Vilja ekki Ólaf Ragnar í framboð

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson mbl.is/Golli

Meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 er andvígur því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, bjóði sig fram til endurkjörs á næsta ári. Alls sögðust 47,6 prósent þeirra sem afstöðu taka í könnuninni vilja að Ólafur Ragnar bjóði sig fram að nú, en 52,4 prósent eru því andvíg.

Þegar Fréttablaðið kannaði síðast afstöðu fólk til forsetans, 24. febrúar síðastliðinn, sögðust 50,2 prósent vilja að Ólafur Ragnar færi fram á ný, en 49,8 prósent vildu það ekki.

Talsverður munur er á afstöðu fólks til mögulegs framboðs Ólafs Ragnars eftir því hvaða stjórnmálaflokk það styður. Alls sögðust um 56 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins vilja að Ólafur Ragnar byði sig fram aftur.

Um 30 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar og tæp 32 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna voru sömu skoðunar, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.

Íbúar á landsbyggðinni eru hlynntari framboði Ólafs Ragnars en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Um 52,2 prósent íbúa landsbyggðar innar vilja að hann bjóði sig fram aftur, en 45,4 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert