Skipar starfshóp um svartfugl
mbl.is/Ómar
Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað starfshóp sem ætlað er að gera tillögur um aðgerðir sem stuðlað geti að endurreisn svartfuglastofna hér við land. Þá á hópurinn að gera tillögur um hvernig megi styrkja verndun og sjálfbæra nýtingu stofnanna.
Starfshópurinn er skipaður vegna alvarlegrar stöðu svartfuglastofna hérlendis. Honum er ætlað að fjalla sérstaklega um veiðar og nýtingu svartfugls og hvort breytingar á lögum eða reglum er varða nýtingu á svartfugli, þar með talinni eggjatöku, geti komið að gagni við endurreisn svartfuglastofna og þá með hvaða hætti það megi verða.
Veruleg fækkun hefur orðið í nokkrum stofnum sjófugla undanfarin misseri og segja má að hrun hafi verið í lundastofninum. Lélegur varpárangur hefur verið hjá lunda, sérstaklega á sunnanverðu landinu sl. 4-5 ár og í fyrra varð algjör viðkomubrestur í lundavarpi á Suðurlandi. Stuttnefju hefur fækkað um allt land og álku og langvíu um sunnan- og vestanvert landið, en stofnar þeirra hafa haldið nokkuð í horfinu um norðanvert landið.
Orsakir fækkunar og viðkomubrests sjófugla virðast að mestu leyti vera fæðuskortur, en fuglarnir lifa einkum á sandsíli og loðnu. Hrun varð á sandsílastofninum árið 2000 og hefur hann ekki náð sér á strik síðan en loðnustofninn hefur verið í lægð sl. áratug. Veiðar á sjófuglum hafa ekki verið taldar hafa veruleg áhrif á fækkun stofna þeirra, en eru hins vegar sá þáttur sem mest er hægt að hafa áhrif á til að milda áfallið.
Í starfshópnum sitja:
Sigurður Á. Þráinsson, formaður, umhverfisráðuneyti,
Menja von Schmalensee, skipuð án tilnefningar,
Guðbjörg H. Jóhannesdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands,
Guðmundur A. Guðmundsson, tilnefndur af Náttúrufræðistofnun Íslands,
Steinar Rafn Beck Baldursson, tilnefndur af Umhverfisstofnun,
Sæunn Marinósdóttir, tilnefnd af Skotveiðifélagi Íslands.
Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum til umhverfisráðuneytisins eigi síðar en 31. október 2011.
Bloggað um fréttina
-
Þórir Kjartansson Veiðar breyta nánast engu um þetta -
Árni Gunnarsson Kynjakvóti?
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. september 2011, Innlent Starfshópur um endurreisn svartfuglastofna
- Þriðjudagur, 3. janúar 2012, Innlent Vilja friða 5 tegundir af svartfugli
- Fimmtudagur, 12. janúar 2012, Innlent Veiðibann eina siðlega viðbragðið
- Þriðjudagur, 15. maí 2012, Innlent Svandís Svavarsd.: Veiðar og nýting villtra dýra
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent Eggjataka og veiðar verði takmörkuð
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































