Þór afhentur á morgun

Varðskipið Þór
Varðskipið Þór Landhelgisgæslan

Varðskipið Þór verður á morgun afhent Landhelgisgæslunni við hátíðlega athöfn í Asmar-skipasmíðastöðinni, skipasmíðastöð sjóhersins í Chile. Gert er ráð fyrir að skipið komi til  Íslands 26. október 2011.

Áætlað er að skipið sigli frá Chile nk. þriðjudag. Siglt verður í gegnum Panamaskurð og í heimleiðinni farið í kurteisisheimsóknir til bandarísku og kanadísku strandgæslanna.

Smíði Þórs hófst hinn 16. október 2007 og var varðskipið sjósett 29. apríl 2009 og hlaut þá nafnið Þór sem dregið er úr norrænni goðafræði. Þegar einungis rúmur mánuður var í afhendingu, laugardaginn 27. febrúar 2010, reið öflugur jarðskjálfti, 8,8 stig, yfir Chile. Í kjölfar jarðskjálftans reið gífurleg flóðbylgja yfir svæðið og olli gífurlegri eyðileggingu. Miklar skemmdir urðu á skipasmíðastöðinni þar sem Þór var í smíðum. Vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar seinkaði afhendingu varðskipsins um rúmt ár.

Skip Landhelgisgæslunnar hafa áður borið nafnið Þór. Fyrsta björgunarskipið sem kom til landsins bar nafnið Þór en það var upphaflega keypt af Björgunarfélagi Vestmannaeyja 26. mars árið 1920 til björgunarstarfa við Vestmannaeyjar. Skipið varð síðar eða árið 1926 upphafið að stofnun Landhelgisgæslunnar. Varðskip í þjónustu Landhelgisgæslunnar hafa borið þetta nafn frá þessum tíma og allt til ársins 1986. Nafnið fór svo úr eigu Landhelgisgæslunnar til útgerðarfélagsins Stálskipa ehf. í Hafnarfirði en Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, heimilaði Landhelgisgæslunni að nýta nafnið.

Varðskipið Þór leggur af stað heim á morgun
Varðskipið Þór leggur af stað heim á morgun Landhelgisgæslan
Varðskipið Þór
Varðskipið Þór Landhelgisgæslan
Varðskipið Þór
Varðskipið Þór Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert