Ný náttúruverndarsamök stofnuð

Undanfarið hefur hópur áhugafólks um náttúruvernd undirbúið stofnun náttúruverndarsamtaka á Reykjanesskaga.

Stofnfundur samtakanna verður haldinn þann 18. október næstkomandi og er markmiðið að sameina náttúruverndarfólk á Suðvesturlandi í eina öfluga breiðfylkingu sem muni láta til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum í landnámi Ingólfs, segir í tilkynningu.

Samkvæmt drögum að stefnuskrá eru helstu markið  samtakanna  þau að félagið verði öflugur málsvari umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiða á Suðvesturlandi. Þar segir einnig að félagið mun beita sér fyrir endurreisn spilltrar náttúru, náttúrugæða og umhverfis með þeim hætti er hæfir sem best náttúrulegum aðstæðum á Suðvesturlandi. Félagið muni stuðla að sjálfbærri umgengni um Suðvesturland, sem byggir á öflugri umhverfisvitund, þekkingu og verndarvilja.

Markmiðum sínum hyggjast samtökin m.a. með virkri þátttöku í umræðum um stefnumótun í umhverfismálum á Suðvesturlandi og með samstarfi við stjórnvöld um þau mál. Auk þess að veita stjórnvöldum og framkvæmdaraðilum gagnrýnið aðhald.

Félagið mun einnig taka þátt í  formlegum umsögnum og aðgerðum er tengjast mati á umhverfisáhrifum og ákvörðunum um landnýtingu, og með umsögnum um skipulagsmál sveitarfélaga og þingmál. Svo sem að vinna að bættri lagasetningu í þágu umhverfis- og náttúruverndar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert