Birta myndir vegna ránsins

Myndirnar sem lögreglan hefur birt.
Myndirnar sem lögreglan hefur birt.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt myndir sem teknar voru á Vegamótastíg í gær, skömmu áður en rán var framið í úraverslun á Laugaveginum. Lögreglan óskar eftir upplýsingum frá þeim sem þekkja manninn á myndinni.

Lögreglan leitar enn þriggja manna sem frömdu vopnað rán í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík á ellefta tímanum í gærmorgun.

Vegna málsins er óskað sérstaklega eftir vitnum að grunsamlegum mannaferðum á Vegamótastíg frá kl. 10 - 10:30 í gær. Þá eru þeir sem þekkja manninn á meðfylgjandi myndum, eða vita hvar hann er að finna, vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 eða senda upplýsingar á netfangið abending@lrh.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert