Birta upplýsingar um hitaeiningar

Fríða Rún Þórðardóttir, Siv Friðleifsdóttir og Ásgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Metro, …
Fríða Rún Þórðardóttir, Siv Friðleifsdóttir og Ásgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Metro, á blaðamannafundi í dag þar sem málið var kynnt.

Skyndibitastaðurinn Metro birtir nú upplýsingar um fjölda hitaeininga, næringargildi og ofnæmisvalda í öllum réttum og drykkjum, sem hann selur. 

Fram kemur í tilkynningu að það hafi meðal annars hvatt Metro til dáða, að á Alþingi sé til umræðu tillaga til þingsályktunar um slíkar merkingar, að frumkvæði Sivjar Friðleifsdóttur. 

Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur hafi annast útreikninga á magni hitaeininga og næringargildi.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert