Fasteignir seldar fyrir 2,2 milljarða

Alls var 83 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 21. október til …
Alls var 83 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 21. október til og með 27. október. mbl.is/Ómar Óskarsson

Alls var 83 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 21. október til og með 27. október. Þar af voru 63 samningar um eignir í fjölbýli, 19 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.224 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 36 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 192 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu, samkvæmt vef Þjóðskrár Íslands. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 62 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,6 milljónir króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert