Bíll valt í Draugahlíðarbrekku

mbl.is / Hjörtur

Pallbíll fór út af veginum í Draugahlíðarbrekku, ofan við Litlu Kaffistofuna, í morgun. Tilkynnt var um óhappið klukkan 7.23 í morgun. Sjúkrabíll fór á staðinn en ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, taldi sig vera óskaddaðan.

Hálka hafði myndast í brekkunni frá því fyrr um morguninn og er óhappið rakið til hennar. Bíllinn tók að rása og rakst utan í vegrið áður en hann rann út af veginum og valt á vinstri hlið. Bíllinn var fluttur af staðnum með dráttarbifreið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert