Aðstoða fótbrotinn mann

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa verið kallaðar út til aðstoðar erlendum ferðamanna í Reykjadal á Hellisheiði. Sá hringdi inn til Neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð, telur sig fótbrotinn.

Björgunarsveitir frá Þorlákshöfn, Hveragerði og Selfossi eru á leið á staðinn en reynist ástand hans rétt þarf að bera viðkomandi langa leið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu. Til þess þarf á bilinu 10 - 20 björgunarsveitarmenn enda aðstæður þannig að hált er á svæðinu. 


Um helgina hefur verið töluvert um að björgunarsveitir hafi farið til aðstoðar ferðalöngum sem fest hafa bíla sína. Slíkt gerðist á Víðidalsheiði, við Eyrarbakka, í Sauðhúsaskógi og víðar. Vill Slysavarnafélagið Landsbjörg beina því til ferðalanga að nú fer sú tíð í hönd að veður eru rysjótt og því er nauðsynlegt að undirbúa sig vel og vera vel útbúinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert