Ekki fullbúið frumvarp

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það misskilning að vinnuskjöl sem hann kynnti í gær feli í sér fullbúið frumvarp. Hann segir ákvörðun sína um að birta skjölin hvetja til málefnalegrar umræðu um stjórn fiskveiða.

Jón sendi frá sér yfirlýsingu í dag, en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gagnrýndi hann harðlega í hádegisfréttum RÚV. Hún sagði að þessi drög að frumvarpi, sem Jón kynnti, væru ekki stjórnarfrumvarp og ráðherrann væri kominn ansi langt frá stefnu stjórnarflokkanna í sjávarútvegsmálum.

„Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið lagði í gær fram á vef sínum vinnuskjöl starfshóps um breytingar á stjórn fiskveiða. Málið var kynnt í ríkisstjórn síðastliðinn þriðjudag og rætt þar á tveimur ríkisstjórnarfundum.

Þess misskilnings gætir að um sé að ræða fullbúið stjórnarfrumvarp eða tillögur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Um er að ræða vinnuskjöl sem geta orðið umræðugrundvöllur.
 
Tveir mánuðir eru nú liðnir frá því Alþingi afhenti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti þær umsagnir sem fram komu vegna frumvarps til nýrra laga um fiskveiðistjórnun frá síðastliðnu vori. Starfshópur fékk það hlutverk að fara yfir umsagnirnar og koma fram með sínar tillögur. Afrakstur af þeirri vinnu er þau skjöl sem nú liggja fyrir.
 
Sú ákvörðun að kynna þær almenningi var kynnt í minnisblaði sem lagt var fyrir ríkisstjórn og er í anda opinnar stjórnsýslu og þess gagnsæis sem mælt er fyrir um í yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar.
 
Það er von mín að tillögurnar verði grundvöllur málefnalegrar umræðu um stjórn fiskveiða,“ segir í yfirlýsingu Jóns Bjarnasonar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert