Reykjarlykt í bíói

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um reyk og reykjalykt í Háskólabíói  um klukkan hálf tvö í nótt. Baggalútur hafði haldið þar útgáfutónleika fyrr um kvöldið og var verið að ganga frá eftir gleðina.

Við eftirgrennslan kom í ljós að reykurinn barst frá útiörnum sem stóðu fyrir utan bíóið og að enginn eldur var innandyra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert