Neitaði að yfirgefa spítalann
Birna Steingrímsdóttir, sem var deildarstjóri á lyflækningadeild St. Jósefsspítala, segir að starfsfólk spítalans hafi talið að hann myndi starfa til áramóta en síðan hafi því verið tilkynnt að honum yrði lokað um síðustu mánaðamót. Síðasti sjúklingurinn yfirgaf spítalann í dag. Sá hafði neitað að yfirgefa hann en var nauðugur einn kostur. Þetta kemur fram í vikuritinu Hafnarfirði sem kom út í dag.
„Starfsfólkinu líður einfaldlega hræðilega og hér hafa menn tárast yfir örlögum þessarar stofnunar og því hversu góður vinnustaður þetta hefur verið,“ segir Birna Steingrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur til 20 ára á St. Jósefsspítala og deildarstjóri á lyflækningadeild spítalans. „Það hafa til að mynda engir ráðamenn bæjarins séð ástæðu til að koma hingað og tala við okkur og við erum mjög svekkt yfir áhugaleysinu, og ekki munu þeir koma héðan af því síðasta vaktin er á enda runnin og kominn tími til að læsa,“ segir Birna. „Þetta hefur verið afskaplega góður vinnustaður og því alls ekki skrýtið að hér hafi tár fallið vegna þess hvernig komið er fyrir spítalanum og að menn skuli hafa brjóst í sér til að gera þetta, þekkjandi söguna á bak við spítalann nú þegar hann er 85 ára, byggður upp af St. Jósefssystrum,“ segir Birna.
Hún segir að þegar mest var á sjúkrahúsinu hafi verið um 50 sjúkrarúm og það pláss hafi alltaf verið fullnýtt en þess hafi verið gætt að aldrei þyrfti neinn að vera á göngunum.
„Við héldum reyndar að starfsemin yrði til áramóta en svo kom bara tilkynning um að loka um þessi mánaðamót og það er svo illa að þessu staðið. Engum sagt neitt, við vitum ekki einu sinni hvernig við eigum að ganga frá hinu og þessu svona á síðasta degi. En við höfum auðvitað raunar vitað hvert stefndi. Til dæmis þegar Landspítalinn í Reykjavík yfirtók allt hér 1. febrúar var 14 dögum síðar búið að loka handlækningadeildinni svo efri hæðin hér hefur verið meira eða minna tóm síðan,“ segir Birna.
Hún segir að nú verði Hafnfirðingar að sækja alla spítalaþjónustu til Reykjavíkur. Þannig hafi áður verið röntgendeild til að mynda t.d. beinbrot og slíkt, „nú eykst álagið á slysadeildina í Fossvogi þar sem álag var mikið fyrir“, segir Birna. Hún segir síðasta sjúklinginn hafa farið í dag. „Hann hefur neitað að yfirgefa spítalann en er nauðugur einn kostur,“ segir Birna.
Bloggað um fréttina
-
Sturla Snorrason Hringbrautarormurinn!!! -
Guðrún María Óskarsdóttir. Niðurskurður og nærþjónusta við íbúa. -
Haraldur Haraldsson Neitaði að yfirgefa spítalann///Við öll erum mjög svo andsnúin svona ... -
Óskar Guðmundsson Enn einn fangelsismöguleikinn -
Viggó Jörgensson Engin atkvæði út á lokað sjúkrahús. Nægt rými heima hjá ... -
Ómar Ragnarsson Hefði neitað að fara úr "viðrekstrarherberginu".
Innlent »
- Rannsókn nauðgunarmála lokið
- Óljóst um hvað málið snýst
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Sorgardagur á St. Jósefsspítala
- Þriðjudagur, 11. október 2011, Innlent St. Jósefsspítala lokað um áramót
- Föstudagur, 4. febrúar 2011, Innlent Margir starfsmenn langþreyttir
- Föstudagur, 20. janúar 2012, Innlent Starfsmönnum LSH fækkaði um 718
- Föstudagur, 10. desember 2010, Innlent Spítalar sameinaðir 1. febrúar
-
Leita enn að líkum um borð
-
Viktoría fer heim af spítalanum
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína




































