Mörður: Enginn greiði við Geir

Mörður Árnason.
Mörður Árnason. mbl.is

„Það er enginn greiði við þingið, þjóðina eða þann sem fyrir dóminum stendur,“ segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, aðspurður um álit sitt á hugsanlegri þingsályktunartillögu um að hætta málaferlum á hendur Geir H. Haarde fyrir landsdómi.

Mörður kvaðst að öðru leyti ekki geta tjáð sig um málið á þessu stigi.

Hann hefði til að mynda ekki setið allan þingflokksfund Samfylkingarinnar í kvöld og væri því ekki til frásagnar um hvort málið hefði borið á góma þann hluta fundarins sem hann var fjarstaddur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert