Útsölur hefjast á morgun

Frá útsölu í Kringlunni.
Frá útsölu í Kringlunni. Eggert Jóhannesson

Útsölutímabilið hefst á morgun, 2. janúar,  í verslunarmiðstöðvunum Smáralind og Kringlunni. Verslunum er í sjálfsvald sett hvenær þær hefja útsölurnar á tímabilinu, sem stendur í nokkrar vikur, en nokkrar verslanir hafa auglýst í dag að útsölur hefjist á morgun.

Útsölur hófust einnig í nokkrum verslunum á milli jóla og nýárs.

Margar verslanir, bæði stórar og smáar, sem ekki eru í stóru verslunarmiðstöðvunum, hafa einnig auglýst útsölur á morgun eða á allra næstu dögum. Margir eru í vafa um hvaða reglur gilda á útsölum, en fyrir nokkrum árum voru settar reglur af neytendastofu varðandi útsölur eða aðra sölu þar sem vörur eru seldar á lækkuðu verði.

Reglur um útsölur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert