1 poki af iðnaðarsalti á KFC

KFC - Kentucky Fried Chicken
KFC - Kentucky Fried Chicken

KFC keypti aðeins einn poka af iðnaðarsalti fyrir veitingastað sinn á Selfossi í síðasta sumar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem skyndibitakeðjan hefur sent frá sér. Þar segir að pokinn hafi verið keyptur í góðri trú um að um matarsalt væri að ræða og því miður hafi verið búið að nota saltið til söltunar á frönskum kartöflum þegar upp komst.

Í yfirlýsingu KFC segir:
 
„Keyptur var aðeins einn poki af iðnaðarsalti hjá KFC á Selfossi í ágúst á síðasta ári. Pokinn var keyptur í góðri trú um að matarsalt væri að ræða. Ekki var slíkt salt keypt inn á aðra staði, enda salt keypt af öðrum birgja að öllu jöfnu. Þegar starfsfólk KFC varð þess vart að á umbúðum stóð að saltið væri ekki ætlað til manneldis var komið í veg fyrir að slíkt salt yrði keypt aftur inn.
 
Því miður verður það þó að viðurkennast að saltið úr pokanum hafði verið notað til söltunar á frönskum kartöflum þegar upp komst um áletrun á pokanum og hörmum við þau mistök. Við viðtöku á pokanum var ekki lesið sérstaklega á umbúðirnar enda treysti starfsfólk því að Ölgerðin sendi ekki matvæli sem væru óhæf til manneldis.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert