Reykjanesbraut lokað

Á Reykjanesbraut. Úr myndasafni.
Á Reykjanesbraut. Úr myndasafni. Víkurfréttir

Reykjanesbraut var lokað á tólfta tímanum í kvöld. Mikið annríki er hjá björgunarsveitum við að aðstoða ökumenn sem komast hvorki lönd né strönd. Sagði lögreglan á Suðurnesjum óvíst hvenær opnað yrði fyrir umferð á ný. 

Fjöldi flugfarþega er því veðurtepptur í Keflavík en óvíst er hvort Flugrútan kemst suður í fyrramálið.

Sagði lögreglan nánast ekkert skyggni á Reykjanesbraut. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert