Forsætisráðherra Kína í heimsókn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína.

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er væntanlegur í opinbera heimsókn til Íslands seinni hluta aprílmánaðar.

Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, að boð til forsætisráðherra Kína hafi legið fyrir frá árinu 2006 þegar Halldór Ásgrímsson, þáverandi forsætisráðherra, sendi boðsbréf. Árið 2011 var 40 ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Kína og var þá hafist handa við að finna tíma fyrir mögulega heimsókn. Heimsóknin hefur verið undirbúin í samstarfi við sendiráð Kína hér á landi og með atbeina sendiráðs Íslands í Kína. Fram kom á síðasta ári, að Kínverjar lögðu til að Wen kæmi hingað til lands um miðjan júlí en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sá sér ekki fært að taka á móti honum á þeim tíma.

Forsætiráðherra Kína mun, auk fundar með forsætisráðherra og fleiri ráðherrum, eiga fund með forseta Íslands. Einnig mun hann kynna sér jarðhitanýtingu á Íslandi, en hann er jarðfræðingur að mennt.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert