325 þúsund nöfn í málaskrá lögreglu

Samtals hafa 19.621 fyrirtæki og 325.003 einstaklingar verið skráðir hjá lögreglu í málaskrá lögreglu. Engin ákvæði eru í lögum um eyðingu upplýsinga í gagnagrunnum lögreglu.

Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um málaskrá lögreglu.

Ríkislögreglustjóri annast kerfisbundna skráningu upplýsinga um lögreglumálefni. Fyrstu tölvuskráðu gögnin eru frá árinu 1988 en öll lögregluembættin höfðu fyrst tengst miðlægum gagnagrunnum lögreglu í upphafi ársins 1998. Árlega eru skráð um 200.000 mál í lögreglukerfið vegna kærðra brota og annarra verkefna lögreglunnar og í málunum eru skráðar upplýsingar um þá einstaklinga og fyrirtæki sem tengjast brotum og verkefnum lögreglunnar. Samtals hafa 19.621 fyrirtæki og 325.003 einstaklingar verið skráðir hjá lögreglu. Af þeim eru 38.275 erlendir ríkisborgarar og 19.754 látnir. Ástæða skráningar getur verið af margvíslegum toga, sem vitni, tilkynnendur, farþegar í umferðaróhappi, tjónþolar, kærendur, kærðir o.s.frv.

Engin ákvæði eru um eyðingu upplýsinga í gagnagrunnum lögreglu, en mjög öflugar aðgangsstýringar eru að gögnum í lögreglukerfinu og almennur aðgangur lögreglumanna og annarra starfsmanna lögreglu miðast aðeins við að sjá skráð gögn síðustu fimm ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert