Þessar götur verða göngugötur í sumar

Göturnar sem verða lokaðar fyrir bílaumferð í sumar.
Göturnar sem verða lokaðar fyrir bílaumferð í sumar. Af vef Reykjavíkurborgar

Umhverfis- og samgönguráð samþykkti einróma á fundi sínum í morgun tillögu um göngugötur í Reykjavík í sumar.

Göngugötur í miðborg Reykjavíkur síðastliðin sumur hafa gefið góða raun að mati Reykjavíkurborgar. Borgarbúar hafa almennt verið ánægðir með það fyrirkomulag að breyta vinsælum götum í miðborginni í göngugötur yfir sumartímann. Um leið og göngugötur bæta mannlífið, þá eru þær umhverfisvænni því bein mengun frá útblæstri bifreiða og svifryk minnkar til muna, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg

Nýlegar kannanir sýna að mikill meirihluti Reykvíkinga er fylgjandi göngugötum í miðborginni. Viðhorf til þess að Laugavegi verði að hluta til breytt í göngugötu í sumar er algjörlega ótvírætt þar sem 75% borgarbúa eru hlynntir en aðeins 25% andvígir. Þá sýnir könnun á reynslu  rekstraraðila í miðborginni af lokun gatna fyrir bílaumferð síðasta sumar að 55% telja að reynslan af því hafi verið góð en 45% að hún hafi verið slæm.

Einnig voru 55% rekstraraðila fylgjandi því að götum á þeirra rekstrarsvæði yrði  lokað fyrir bílaumferð en  45% voru andvíg. (Athugið tölurnar sýna einungis þá sem tóku afstöðu)

Göngugötur sumarið 2012

Pósthússtræti við Kirkjustræti verður breytt í göngugötu  frá 1. júní til 3. september. Gatan verður opin fyrir akstur með aðföng á milli kl. 08.00 og 11.00 frá mánudegi til föstudags. Bifreiðastöður í Pósthússtræti sunnan Hafnarstrætis verða óheimilar á meðan.  Séð verður til þess að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði staðsett nálægt göngusvæði í Kvos.

Hafnarstræti verður lokað fyrir bílaumferð frá 17. júní – 3. september að austanverðu frá Pósthússtræti. Umferð verður heimiluð í Hafnarstræti frá Tryggvagötu.

Laugavegi verður breytt í göngugötu  milli Vatnsstígs og Skólavörðustígs frá 17. júní til 20. ágúst. Akstur með aðföng verður frá þvergötum á móti hefðbundinni umferð fyrir kl. 11.00 á virkum dögum. Séð verður til þess að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði staðsett nálægt göngugötu.

Skólavörðustígverður göngugata frá  Bergstaðastræti að Laugavegi frá 17. júní til 20. ágúst. Akstur með aðföng verður heimilaður frá Ingólfsstræti fyrir kl. 11.00 á virkum dögum. Séð verður til þess að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði staðsett nálægt göngugötu.

Reykjavíkurborg er reiðubúin að lengja göngugötutímabilið og stækka göngugötusvæði sumarsins ef óskað verður eftir því tímanlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert