Jón Bjarnason: Röggsöm stjórn forseta Alþingis

Jón Bjarnason þingmaður Vg.
Jón Bjarnason þingmaður Vg. mbl.is/Árni Sæberg

„Það var hárrétt hjá Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta þingsins, að taka hið umdeilda og illa unna mál: uppstokkun ráðuneyta, út af dagskrá þingsins um hádegisbilið í dag og taka til umræðu önnur brýnni mál. Þetta gerði hún þvert á vilja forsætisráðherra,“ skrifar Jón Bjarnason, þingmaður Vg, á bloggsíðu sína. 

Jón segir að mörgum hafi ofboðið hvernig formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa verið með hótanir og stóryrði  í garð Alþingis um að það verði að afgreiða þetta mál og hitt á tilgreindum tíma, óháð því hversu seint það kemur fram eða er illa unnið.  

„Lengst gekk nú forsætisráðherrann, „sáttasemjarinn“, Jóhanna Sigurðardóttir, þegar hún steytti hnefann framan í alþingismenn í gær á þingi og setti þeim afarkosti, hótaði næturfundum og sumarþingum ef Alþingi afgreiddi ekki refjalaust illa unnin gælumál hennar umyrðalaust. Sá tími á að vera liðinn að forsætisráðherra geti með geðþóttaákvörðun skipað þinginu fyrir. Virðing og staða þingsins er ekki hvað síst undir framgöngu forseta þess komin. Mér hefur fundist þingforseti, Ásta Ragnheiður Jóhannnesdóttir, oft hafa staðið sig mjög vel við erfiðar aðstæður. Forsætisráðherra hefur keyrt þingsályktunartillöguna um að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og efnahags- og viðskiptaráðuneytið fram af miklu offorsi og í fullkominni andstöðu við nánast alla þá aðila sem málið snertir. Forseti Alþingis verður að geta tekið í taumana og staði vörð um Alþingi og störf þess. Það gerði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir í dag,“ skrifar Jón.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert