Norðmenn á Íslandi fagna 17. maí

Norðmenn búsettir á Íslandi, fylktu liði frá Norræna húsinu og …
Norðmenn búsettir á Íslandi, fylktu liði frá Norræna húsinu og til Dómkirkjunnar, til norskrar messu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna og af því tilefni gengu Norðmenn búsettir á Íslandi, fylktu liði frá Norræna húsinu og til Dómkirkjunnar, til norskrar messu.

Nokkurt fjölmenni var í skrúðgöngunni, enda blíðskaparveður.

Dagurinn í dag, 17. maí, hefur verið þjóðhátíðardagur Noregs frá árinu 1814. en þá hlutu Norðmenn sjálfstæði með undirritun stjórnarskrár Noregs á Eiðsvöllum. Skrúðgöngur voru fyrst gengnar hálfri öld síðar, árið 1864 fyrir tilstuðlan skáldsins Bjørnstjerne Bjørnson.

Norðmenn búsettir á Íslandi, fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum í dag.
Norðmenn búsettir á Íslandi, fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert