Vaðlaheiðargöng fá grænt ljós

mbl.is

Alþingi samþykkti nú síðdegis efnisgreinar frumvarps um fjármögnun Vaðlaheiðarganga.  Alls sagði 31 þingmaður já, 18 sögðu nei og 6 greiddu ekki atkvæði um fyrstu grein frumvarpsins.

31 þingmaður sagði já við aðra og þriðju grein frumvarpsins, en 17 sögðu nei. Fimm greiddu ekki atkvæði.

Frumvarpið fer aftur til fjárlaganefndar og síðan til þriðju umræðu, en niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í dag bendir til þess að málið verði samþykkt að lokinni þriðju umræðu.

Fyrsta greinin er svohljóðandi: „Í þeim tilgangi að tengja Eyjafjörð og Fnjóskadal með jarðgöngum um Vaðlaheiði er ráðherra f.h. ríkissjóðs heimilt að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. um lán til gangaframkvæmda fyrir allt að 8.700 m.kr., miðað við verðlag í lok árs 2011.
Félagið sjálft, eignir þess og tekjustreymi skulu vera fullnægjandi tryggingar fyrir láni skv. 1. gr.
Lánsfjárhæð skal greiðast félaginu í samræmi við framvindu verks og í samræmi við lánasamning skv. 1. mgr. 1. gr. laga þessara.
Gera skal grein fyrir lánsfjárhæð hvers árs í frumvarpi til fjárlaga fyrir það ár.“

Samþykkt var að málið fari til fjárlaganefndar Alþingis fyrir þriðju umræðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert