Fréttaskýring: Hver er næstur?

Mörg dæmi hafa komið upp að undanförnu þar sem einstaklingar …
Mörg dæmi hafa komið upp að undanförnu þar sem einstaklingar sem sprauta sig með rítalíni lenda í slíku ástandi að þeir eru verulega hættulegir umhverfi sínu. mbl.is/Ómar

Óhugnanlegt morð, framið í Hafnarfirði í febrúar leiðir af sér ýmsar spurningar, meðal annars um það fólk sem sprautar sig í æð með rítalíni. Sé það ekki sjálft við það að deyja fær það morðhugsanir, og hver er þá næstur?

Vart þarf að fara mörgum orðum um morðið í Hafnarfirði. Ítarlega hefur verið fjallað um það á mbl.is. Í gærmorgun var kveðinn upp dómur og Hlífari Vatnari Stefánssyni gert að afplána 16 ár í fangelsi fyrir að hafa orðið unnustu sinni að bana.

Án þess að fara ofan í það mál á nýjan leik er þess virði að skoða og greina skýrslu geðlæknis, sem matskvaddur var í málinu.

Ástæða þess að nánari skoðun á þessum eina þætti hefur vigt er eftirfarandi setning: „Sé slíkt óminnisástand vel þekkt í áfengisneyslu en undanfarið hafi mörg dæmi komið fram um slíkt af völdum mikillar neyslu rítalíns í æð, en þá séu áhrifin miklu ofsafengnari en þegar það sé tekið í töfluformi, og því geti fylgt morðhugsanir. Séu menn oft á mörkunum með að deyja sjálfir af krampa eða slíku. Því sé hugsanlegt að hann hafi ekki neinar minningar um verknaðinn.“

Þarna er geðlæknirinn að svara við aðalmeðferð málsins hvort það geti staðist að árásarmaðurinn muni ekki eftir atvikum málsins.

Með orðum sínum er geðlæknirinn að segja, að mörg dæmi hafi komið upp að undanförnu þar sem einstaklingar sem sprauti sig með rítalíni lendi í slíku ástandi að þeir eru verulega hættulegir umhverfi sínu.

Þannig því sé haldið til haga þá er ekki nema rétt rúmlega ár síðan velferðarráðherra ákvað að skipa viðbragðshóp til að til að stemma stigu  við misnotkun methýlfenídat lyfja, meðal annars rítalíns og concerta.

Á ráðstefnu sem ég sótti um málefni ADHD þótti alveg merkilega fyndið meðal lækna - á læknaráðstefnu - að þetta um sé að ræða eina sjúkdóminn þar sem sjúklingar greina sig sjálfir og heimta lyf. 

Án nokkurs vafa hefur mikið áunnist í þessum efnum, og það er ljóst. Og því miður verða alltaf fórnarlömb fíknisjúkdóma, verst er þegar þau fórnarlömb breytast í óargardýr og verða öðrum að bana.

Þetta hörmulega morðmál á verða til þess að foreldrar gæti betur að börnum sínum, til þess að sprautufíklar hugi að því hverju þeir sprauta í líkama sinn. 

Kannski á þetta að verða til þess að velferðarráðuneytið fari að bjóða þessum fíklum betur. Horfa í kringum sig og sjá að núverandi stefna er ekki að virka. Auðséð er að hægt er að koma í veg fyrir flest manndráp með mannsæmandi þjónustu við þá veikustu þegar kemur að vímuefnum.

Rítalín.
Rítalín. mbl.is/Frikki
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert