Braust inn í apótek í Kópavogi

mbl.is/Ásdís

Tilkynnt var um yfirstandandi innbrot í apótek í Kópavogi fimm mínútur í fimm í morgun. Lögreglumenn voru snöggir á vettvang og var maðurinn, góðkunningi lögreglunnar, kominn í handjárn áður en klukkan sló fimm.

Maðurinn komst inn í apótekið með því að brjóta upp hurð. Hann var fluttur á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, verður yfirheyrður í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert