Halda úreltu skipulagi í Kvos til streitu

Verðlaunatillaga að útliti Ingólfstorgs og nágrennis.
Verðlaunatillaga að útliti Ingólfstorgs og nágrennis. Teikning/ASK arkitektar

Stjórn Íbúasamtaka miðborgar lýsir yfir vonbrigðum með þá afstöðu Reykjavíkurborgar að halda til streitu meginþáttum Kvosarskipulags frá 1987 en nýverið var kynnt verðlaunatillaga um skipulag Kvosarinnar.

Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu borgarinnar um að ný byggð bæti hina eldri fremur en að rýra gæði hennar verður ekki annað séð en gengið sé á almannrými og ný hús meðal hinna eldri séu í hróplegu ósamræmi við þau vegna hæðar og umfangs. Eru þá einkum höfð í huga fyrirhuguð hús við Vallarstræti. Þá telur stjórnin að mikil eftirsjá sé að Nasasalnum eða gamla Sjálfstæðishúsinu. Stjórnin hefur efasemdir um að mikil fjölgun gistirýma muni stuðla að fjölbreytilegu og skapandi mannlífi í miðborginni.

Þetta kemur fram í samþykkt samtakanna sem gerð var á fundi þeirra 31. júlí.

Stjórnin telur ljóst að skipulagið frá 1987 sé úrelt og nýlega hugmyndasamkeppni ekki breyta þeirri niðurstöðu.

„Það hlýtur að vera krafa Reykvíkinga að þetta skipulag miðborgarinnar sé endurskoðað með hagsmuni íbúa og almennings að leiðarljósi í stað þess að áhersla sé enn einu sinni lögð á að mæta fjárhagslegum hagsmunum lóðarhafa. Stöðug hræðsla borgaryfirvalda við bótaskyldu má ekki leiða til þess að bersýnileg skipulagsmistök séu látin standa lítt eða óhreyfð. Gera ber kröfu um að lóðarhafar sýni fram á raunverulegt tjón af endurskoðuðu skipulagi, eftir atvikum fyrir dómstólum. Með því að láta skipulagið 1987 standa í verulegum atriðum óhreyft á kostnað íbúa og almennings telur stjórn Íbúsamtaka miðborgarinnar að meiri hagsmunum sé fórnað fyrir minni til lengri tíma litið,“ segir í samþykkt Íbúasamtaka miðborgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert