„Áframhaldandi samstarf vinstrimanna“

Katrín Jakobsdóttir er myrk í máli þegar kemur að umræðum …
Katrín Jakobsdóttir er myrk í máli þegar kemur að umræðum um áframhaldandi samstarf við Samfylkingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar er nú lokið, en hann fór fram á Hólum í Hjaltadal fyrr í dag. Utanríkismál voru rædd á fundinum en flokkurinn skilaði ekki af sér ályktun um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. „Engin slík ályktun lá fyrir eftir fundinn. Hins vegar liggur fyrir ályktun samskipti Íslands við aðrar þjóðir eða þjóðabandalög. Fundurinn var ekki haldinn sérstaklega til að álykta heldur fyrst og fremst til að vinna í málefnahópum og ræða málin,“ segir Katrín.

„Utanríkismálin voru hins vegar rædd í vinnuhópi um þau mál og sama má segja um fleiri mál, svo sem landbúnaðarmál og kosningaáherslur. Mjög mikið var lagt í vinnu á þessum fundi til að slá tóninn fyrir veturinn,“ segir hún.

Samstarf félagshyggjufólks

Aðspurð hvaða viðhorf gagnvart Evrópusambandsaðild hafi verið ríkjandi segir hún stefnu flokksins ekki hafa breyst hvað það varðar. „Afstaða fólks til málsins hefur frekar styrkst en hitt, við stöndum við okkar stefnu í þeim efnum og vorum sammála að einmitt núna þyrfti að fara mjög vandlega yfir stöðu þess,“ segir Katrín. 

Í almennri stjórnmálaályktun á fundinum kemur fram að „góðum árangri þarf að fylgja eftir með áframhaldandi samstarfi vinstrimanna í íslenskum stjórnmálum á næsta kjörtímabili.“ Aðspurð hvort þetta merki að Vinstri grænir muni sækjast eftir áframhaldandi samstarfi við Samfylkinguna eftir næstu kosningar nái þeir meirihluta segir hún það ekki ljóst. „Að minnsta kosti áframhaldandi samstarfi vinstrimanna. Það er það sem við horfum á - samstarf félagshyggjufólks, já. Það er nákvæmlega það sem það segir, hvorki meira né minna,“ segir Katrín. 

Frétt mbl.is: Mikill og ótvíræður árangur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert