Blóðslettur á bílum starfsmanna

Akranes.
Akranes. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Skemmdarverk voru unnin á bifreiðum starfsmanna og gesta við skemmtistaðinn Gamla kaupfélagið á Akranesi í nótt. Ekki er vitað hver var að verki en talið er að hann hafi verið eitthvað slasaður því blóðslettur voru á öllum þeim bílum sem skemmdir voru.

Á fréttavef Skessuhorns kemur fram að skemmdaverkin hafi að öllum líkindum verið unnin á milli klukkan þrjú og fjögur í nótt. Einnig að forsvarsmenn Gamla kaupfélagsins lýsa eftir vitnum eða hverjum þeim sem hefur upplýsingar um málið. Er þeim bent á að hafa samband við lögregluna á Akranesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert