Hafði ekki hugmynd að hennar væri leitað

Björgunarsveitarfólk að störfum. stækka

Björgunarsveitarfólk að störfum.

Mannleg mistök urðu til þess að leit var hafin að erlendri konu við Eldgjá í gær. Konan hafði ekki hugmynd um að hún væri sú sem leitað væri að. Oftalið var í rútuna.

Sveinn K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, segir konuna alsaklausa. Hún hafi alls ekki verið að blekkja samferðafólk sitt eða björgunarsveitarmenn sem hófu leit að henni eftir hádegið í gær. Konan fór líklega úr einhverjum af þeim fötum sem hún var í er áð var í Eldgjá en rútan var á leið á milli Landmannalauga og Skaftafells. Hún hafði svo sjálf ekki kannast við lýsinguna sem gefin var á „týndu konunni“ og samferðamenn hennar báru ekki kennsl á hana eftir fataskiptin.

„Konan hafði ekki hugmynd um að hún væri týnd,“ segir Sveinn.

Sveinn segir að um 50 björgunarsveitarmenn hafi leitað hennar í gær við Eldgjá. Um miðnætti fóru að renna tvær grímur á leitarmenn og um kl. þrjú í nótt var leit hætt - enda þá orðið ljóst að konan var alls ekki týnd heldur hafði verið í rútunni allan tímann.

Lýsingin sem gefin var af konunni í gær er eftirfarandi: „Konan er af asískum uppruna, um 160 cm á hæð, dökkklædd og talar góða ensku. Hún er á aldrinum 20-30 ára og með litla, ljósa hliðartösku.“

Ung stúlka í rauðri kápu

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem konu er leitað sem er ekki týnd. Sagt var frá því í Vísi 7. september 1954 að mikil leit hefði verið gerð að ungri stúlku í rauðri kápu. Hún hafði farið til berjatínslu í Kjós með hundrað manna hópi en ekki skilað sér til baka. Leitað var fram í myrkur og auglýst eftir henni í útvarpinu. Síðar kom í ljós að hún hafði sjálf tekið þátt í leitinni. Misskilningurinn stafaði af því að gefin hafði verið röng lýsing á fatnaði stúlkunnar „og raknaði ekki úr flækjunni fyrr en stúlkan gaf sig fram við lögregluna og taldi líklegt að leitin hefði verið gerð sín vegna“.

Frétt mbl.is: Tók þátt í leit að sjálfri sér

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Eiginmaður Eyglóar spilar á saxófón

Sigurður E. Vilhelmsson líffræðingur, framhaldsskólakennari, þýðandi og eiginmaður nýorðins félags- og húsnæðismálaráðherra, Eyglóar Harðardóttir.
10:30 Makar þeirra ráðherra sem tóku sæti í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks deila því hvernig næstu ár horfa við þeim hvað fjölskyldulíf varðar, hvaðan þeir koma og hvað þeir gera sér til dundurs meðan makinn er í vinnunni við að stýra landinu. Meira »

Tæplega 2.500 jarðskjálftar í apríl

Upptök jarðskjálfta á Íslandi í apríl 2013. Rauðir hringir tákna jarðskjálfta stærri en 0 að ...
10:17 Veðurstofa Íslands hefur staðsett tæplega 2.500 jarðskjálfta í apríl. Helsti atburður mánaðarins var snörp skjálftaröð vestan við Grímsey, sem hófst með jarðskjálfta af stærð 5,5 þann 2. apríl. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi. Nokkur þúsund eftirskjálftar mældust, og er úrvinnslu ekki lokið. Meira »

„Þú ert viðbjóður og ógeð“

„Hann stóð í svefnherbergishurðinni og hleypti mér ekki út. Þegar maður er kominn í þessa ...
10:00 „Þó að ég byggi að reynslu úr mínu starfi við að aðstoða þolendur heimilisofbeldis þá datt ég sjálf í þennan pytt,“ segir kona sem hefur í gegnum árin unnið í velferðarkerfinu og m.a. oft rætt við þolendur heimilisofbeldis. Samt giftist hún manni sem beitti hana alvarlegu ofbeldi. Meira »

Færri nota frímerkin

Fallegasta frímerki ársins 2009.
09:39 „Við vonum að þau lifi á meðan sendibréfið lifir,“ segir Vilhjálmur Sigurðsson, forstöðumaður Frímerkjasölu Póstsins, um frímerkjanotkun landsmanna. Í gegnum árin hefur dregið úr notkun frímerkja og helst það á vissan hátt í hendur við fækkun bréfasendinga. Meira »

Stefna á breyttan ramma í sumar

Virkjanir í neðri hluta Þjórsár.
08:51 Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr umhverfisráðherra, býst við að tillaga til nýrrar þingsályktunar um rammaáætlun verði lögð fyrir á sumarþingi. „Það verður væntanlega þannig að málinu verði vísað aftur til verkefnastjórnar [um rammaáætlun]“, sagði hann. Meira »

Vegurinn um Kjálkafjörð opnaður

Frá Kjálkafirði.
08:26 Vegagerðin hefur opnað Vestfjarðarveg nr. 60 um Kjálkafjörð en honum var lokað vegna hættu á skriðuföllum. Ekki þótti verjandi að ógna öryggi vegfarenda. Sérstök vakt var við framhlaupið í gær og veginum lokað á miðnætti. Hann hefur nú verið opnaður að nýju. Meira »

Barroso hlakkar til samstarfs

José Manuel Barroso.
09:36 „Ég hlakka til að eiga í góðu samstarfi við þig og ríkisstjórn þína og óska ykkur alls hins besta á kjörtímabilinu,“ segir í bréfi José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra. Meira »

Ekki bannað að biðja um fjárhagsupplýsingar

08:30 Engin sérstök lagaákvæði kveða á um bann við því að fjármálafyrirtæki óski eftir upplýsingum um fjárhagsstöðu maka skuldara.  Meira »

Líkfundur á Seltjarnarnesi

07:43 Lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð að fjörunni á Seltjarnarnesi í gærkvöldi vegna líkfundar. Fannst líkið í grennd við Nesvöll Golfklúbbs Seltjarnarness. Litlar sem engar upplýsingar fást um málið hjá lögreglu en ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Meira »

Fjórir teknir við veggjakrot

Veggjakrot er hvimleitt vandamál.
07:23 Nóttin var með rólegra móti hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins, ef marka má tilkynningu um það helsta úr dagbók næturinnar. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar en svo virðist sem um ágreining vegna ölvunar hafi verið að ræða og árásirnar minniháttar. Þá voru veggjakrotarar staðnir að verki. Meira »

Illugi afhjúpaði Regnbogann

Regnboginn, glerþynnur í öllum regnbogans litum með nöfnum allra nemenda og starfsmanna skólans.
07:15 Fyrst verk nýs mennta- og menningarmálaráðherra var innt af hendi í gær. Illugi Gunnarsson var þá heiðursgestur á afmælishátíð Rimaskóla, en tuttugu ár eru síðan skólinn var settur á fót. Illugi fékk það verk að afhjúpa listaverkið Regnbogann sem nemendur og starfsfólk gerðu í tilefni afmælisins. Meira »

Óvíst hvenær sumarþingið hefst

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kemur til að taka við lyklum að forsætisráðuneytinu.
05:30 Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, kom saman til síns fyrsta fundar í stjórnarráðinu í gær. Meira »

Magur og illa brotinn

Róbert A. Stefánsson heldur á erninum vængbrotna, Guðmundur Halldórsson og ferðamennirnir sem fundu örninn fylgjast ...
05:30 Átta ára gamall haförn fannst vængbrotinn á Dagverðarnesi á Fellsströnd í fyrrakvöld. Hann var handsamaður um miðnættið og honum komið til dýralæknis. Örninn reyndist svo illa farinn að ákveðið var að svæfa hann. Meira »

Gjald á grundvelli afnota

Réttur fólks til aðgangs að óræktuðu landi er lögvarinn þótt það sé í einkaeigu.
05:30 Heimildir landeigenda til gjaldtöku á ferðamannastöðum eru ekki skilgreindar í náttúruverndarlögum, að sögn Sigrúnar Ágústsdóttur, lögfræðings og sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun. Meira »

Vaxandi óánægja með launakjörin

Launafólk er ekki sátt við kjör sín.
05:30 Mat launafólks á launakjörum, vinnuskilyrðum, starfsanda á vinnustað o.fl. er mun betra á almennum vinnumarkaði en hjá hinu opinbera. Meira »

Ástand bílanna almennt gott

Sumir bílarnir sem voru stöðvaðir fengu skoðun í sérstakri færanlegri skoðunarstöð en engin bifreið var ...
05:30 Um 520 bifreiðar voru stöðvaðar á leiðinni frá Leifsstöð milli kl. 14 og 17 í gær, í sérstöku eftirliti með ástandi bílaleigubíla. Meira »

Andlát: Ingiríður Vilhjálmsdóttir

Ingiríður Vilhjálmsdóttir.
05:30 Ingiríður Vilhjálmsdóttir lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 18. maí sl. Ingiríður fæddist í Reykjavík 14. nóvember 1906 og var því 106 og hálfs árs þegar hún lést. Hún var þriðji elsti Íslendingurinn. Meira »

Kaupa aftur eignirnar af Fasteign

Bæjarsjóður Vestmannaeyja á fyrir kaupunum.
05:30 Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar hefur ákveðið að kaupa aftur þær eignir sem bærinn seldi Fasteign hf. árið 2004 og hefur leigt síðan þá. Meira »
BESTU FRÍIN
Bestu fríin, með öll þægindin með sér. Einkaum...
Sófasett til sölu kr.15.000.-
Grænt leður 3+2+1 í þokkalegu ástandi upplýsingar í síma 8616899...
Íbúðagisting á frábærum stað á Akureyri
Rúmgóð fjögura herberga íbúð í Brekkugötu 33. Uppábúin rúm fyrir 6 manns, net, f...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar,...
 
Samkoma kl. 17.00 hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Samkoma kl. 17.00. Anita Gerber ...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensásk...
Rafmagns- verk eða tæknifræðingur
Tölvur/upplýsingatækni
RAFMAGNS- VERK- EÐA TÆKNIFRÆÐINGUR V...