Vinnumálaráðherra Svía í heimsókn

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Hillevi Engström, vinnumálaráðherra Svía.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Hillevi Engström, vinnumálaráðherra Svía.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra tók í dag á móti Hillevi Engström, vinnumálaráðherra Svía, sem stödd er hér á landi til að kynna sér aðgerðir íslenskra stjórnvalda á sviði vinnumarkaðsmála og framkvæmd vinnumarkaðsúrræða. 

Ráðherrarnir áttu fund saman í velferðarráðuneytinu fyrir hádegi. Engström fór yfir stöðu þessara mála í Svíþjóð og Guðbjartur gerði grein fyrir því hvernig stjórnvöld brugðust við efnahagshruninu og afleiðingum þess með áherslu á að verja velferðarkerfið og sporna gegn atvinnuleysi með fjölbreyttum aðgerðum.

„Atvinnuleysi er nú það minnsta sem mælst hefur frá árslokum 2008, er um 4,7% sem er með því minnsta sem þekkist í Evrópu. Þetta sýnir að aðgerðir okkar hafa skilað árangri. Það eru hins vegar ákveðnir hópar sem við þurfum nú að huga að sérstaklega, ekki síst einstæðir foreldrar og við munum leggja áherslu á aðgerðir til að bæta stöðu þeirra og barnafjölskyldna á komandi mánuðum,“ segir Guðbjartur í fréttatilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Í framhaldi af fundi ráðherranna kynnti Lára Björnsdóttir velferðarvaktina og verkefni hennar fyrir sænska vinnumálaráðherranum og Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands sagði frá niðurstöðum rannsókna sinna á áhrifum fjármálahrunsins á lífskjör þjóðarinnar.

Eftir hádegi heimsótti Engström Fjölsmiðjuna sem er vinnusetur fyrir ungt fólk þar sem veitt er þjálfun til undirbúnings þátttöku á almennum vinnumarkaði eða frekara námi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert