„Ætli kyn skipti máli?

Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, veltir fyrir sér hvort það skipti máli að forstjóri Landspítalans sé karlmaður en rektor Háskóla Íslands kona. Kristín Ingólfsdóttir er með einn þriðja af launum Björns Zoëga.

„Eftir hrun voru laun háskólarektors lækkuð um 14% en síðar gekk sú lækkun til baka. Etir hækkunina sem Björn fékk eru laun rektors tæplega 1/3 af launum hans. Skyldi kyn þeirra skipta máli hér? Varla er hægt að halda því fram að spítali sé merkilegra eða stærra batterí að stjórna en stærsti háskóli landsins,“ segir Stefanía.

Að sögn Stefaníu er erfitt fyrir ráðherra, Guðbjart Hannesson, að taka einn ríkisstarfsmann út og verðlauna hann fyrir vel unnin störf. Málið sé að allir opinberir starfsmenn hafi lagt sitt af mörkum til að halda úti góðri þjónustu þrátt fyrir mikinn niðurskurð til stofnana eins og menntastofnana og heilbrigðisstofnana svo fátt eitt sé nefnt.

Laun opinberra starfsmanna drógust saman eftir hrun og álag hefur víða aukist. Sem dæmi megi nefna að framlög til Háskóla Íslands á síðustu þremur árum hafa dregist saman um 20%. Á sama tíma hefur nemendum fjölgað um tæplega 20% og eru nú rúmlega 14 þúsund.

Eins og fram kom í fréttum RÚV í hádeginu tók Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, einn ákvörðun um að hækka laun Björns um 450 þúsund en kjararáð ákvarðar um laun helstu embættismanna landsins. Stefanía segir að þetta veki upp spurningar um lögmæti þess að ráðherra taki fram fyrir hendur kjararáðs og veltir fyrir sér hvernig kjararáð muni taka á málinu sem og flokkssystkini Guðbjarts í Samfylkingunni, flokks sem kenni sig við jafnaðarstefnuna.

Guðbjartur tók þá ákvörðun í ágúst að hækka mánaðarlaun Björns um 450 þúsund krónur á mánuði og er hann nú með 2,3 milljónir króna í laun á mánuði samkvæmt frétt RÚV:

Fram kemur í fréttinni að Birni hafi á dögunum verið boðin staða forstjóra stórs sjúkrahúss í Svíþjóð en inni í því tilboði hafi verið veruleg launahækkun. Björn hafi velt tilboðinu fyrir sér og því upplýst yfirmenn sína um það og þar á meðal Guðbjart.

Björn segir í samtali við vb.is að þótt hann hafi ráðið sig tímabundið sem forstjóra Landspítalans þá verði hann að nýta menntun sína. 

„Ég er menntaður bæklunarskurðlæknir og verð að halda mér við. Svo er ákveðin sérþekking sem ég hef fram að færa. En á móti eru dagarnir langir,“ segir Björn sem samhliða starfi sínu sem forstjóri Landspítalans er klínískur prófessor við Háskóla Íslands. Í dag sinnti hann m.a. fjölda sjúklinga á göngudeild fyrir hádegið, kennslu eftir hádegi og sat fundi síðdegis. 

Björn var bæklunarskurðlæknir við Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsið í Gautaborg í Svíþjóð áður en hann tók til starfa hjá Landspítalanum árið 2002. Hann sagðist ekki geta tjáð sig um það hvar honum hafi verið boðin forstjórastaða ytra.

Þrátt fyrir launahækkun Björns er hann ekki með há laun í samanburði við kollega hans á hinum Norðurlöndunum. Birgir Jakobsson stýrir m.a. Karolinska-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í Svíþjóð. Talið er að laun hans nemi á bilinu 3,5 til 4 milljóna króna á mánuði að undanskildum fríðindum, samkvæmt frétt vb.is.

Guðbjartur Hannesson hefur ekki svarað ítrekuðum tilraunum mbl.is til þess að ná tali af honum vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert