Ögmundur vill ESB-kosningu í vor

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Kristinn Ingvarsson

„Mín afstaða er alveg skýr. Ég tel að okkur beri lýðræðisleg skylda til að veita þjóðinni aðgang að þessu máli áður en kjörtímabilið er úti,“ segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu í vor um hvort halda beri viðræðum við Evrópusambandið áfram.

„Þannig að ég hef verið því fylgjandi og hef beitt mér fyrir því innan stjórnarmeirihlutans að sú afstaða verði ofan á. Í öðru lagi er það svo að þótt menn hafi komist að tiltekinni niðurstöðu í upphafi kjörtímabilsins að þá taka slíkar skuldbindingar til þessa kjörtímabils og renna því út við lok þess. Það var aldrei ætlunin að fara inn í margra kjörtímabila skak um þetta mál,“ segir Ögmundur .

Ljóst er að taka þarf ákvörðun um þjóðaratkvæði á næstu vikum eigi slík kosning að fara fram fyrir þingkosningarnar í apríl, líkt og Ögmundur vill, í ljósi lagalegrar skyldu um fyrirvara þar um. Má fræðast um þá fyrirvara í 4. grein laga um þjóðaratkvæðagreiðslur hér.

Verður vægt til orða tekið erfitt mál

- Verður umsóknin erfið fyrir VG ef málið fer opið inn í kosningar?

„Það er mjög vægt til orða tekið.“

- Er verið að ganga lengra í þessum málum en þið í VG féllust á?

„Það var aldrei meiningin að fara með þetta inn í mörg kjörtímabil, aldrei meiningin. Ekki heldur að undirgangast aðlögunarferli í þeim mæli sem krafa hefur verið gerð um. Síðan er það hitt að aðstæður hafa gjörbreyst frá því við lögðum upp í þessa för. Evrópusambandið hefur lent í gríðarlegum hremmingum og hér innanlands hafa svo aftur komið upp aðstæður sem gera okkur ekki einu sinni kleift að framfylgja EES-samningnum varðandi fjármagnsflutninga.

Íslenskir hagsmunir leyfa ekki afnám gjaldeyrishafta - og þar með frjálsa fjármagnsflutninga við þær aðstæður sem við búum við. Það er mjög holur tónn í því að sitja við samningaborð þar sem það er sett fram sem forgangsverkefni Íslendinga að taka upp evru og aflétta gjaldeyrishöftum. Við hljótum að horfa til aðstæðna og hvernig þær hafa breyst. Það höfum við gert í öðrum málum sem stjórnarsáttmálinn kveður á um. Það hefur aldrei þótt heilsusamlegt að berja höfðinu við steininn.“

Össur sannfæri Íslendinga um kosti evrunnar

- Hvernig bregstu við þeim ummælum Össurar í gær að evran sé að styrkjast?

„Ef þetta er hans skoðun þá talar hann væntanlega fyrir henni í þjóðaratkvæðagreiðslu og aðdraganda hennar. Ef Össuri Skarphéðinssyni þykir evran spennandi valkostur fyrir Ísland þá reynir hann væntanlega að sannfæra okkur um að svo sé. Ég held hins vegar að róður hans gæti orðið nokkuð þungur. En ég spyr hann og aðra sem telja sig hafa svona fínan málstað að verja: Hvað er að óttast við að þjóðin komi að málinu og kveði upp úr með hvað er rétt að gera í þessu deilumáli sem þjóðin ein hefur umboð til að leiða til lykta?“

- Viltu þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB samhliða þingkosningum?

„Ég hefði helst viljað fá hana fyrr. Ég hefði talið það heppilegra og ég hef talað fyrir því innan stjórnarmeirihlutans.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert