Vilja að FME rannsaki útboð Eimskips

mbl.is/Styrmir Kári

Lífeyrissjóðurinn Festa telur að fjárfestar hafi ekki allir setið við sama borð í hlutafjárútboði Eimskips sem lauk í gær. Sjóðurinn hefur því sent erindi til fjármálaeftirlitsins þar sem óskað er eftir rannsókn, að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV.

Haft er eftir Gylfa Jónssyni, framkvæmdastjori lífeyrissjóðsins Festu, að svo virðist sem menn hafi ekki allir setið við sama borð. „Við höfum spurnir af því að í aðdraganda útboðsins í gærmorgun hafi verið hringt í einstaka fjárfesta og þeim gefinn kostur á að gera tilboð með fyrirvara um það að kaupréttarsamningar æðstu stjórnenda yrðu felldir niður. Við höfum óskað eftir því að Fjármálaeftirlitið rannsaki framkvæmd útboðsins og ef satt reynist þá standa menn ekki jafnfætis í tilboðsgerð og væri það ömurleg byrjun á endurvakningu íslensks hlutabréfamarkaðar,“ sagði Gylfi í fréttum RÚV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert