Flytur í kjördæmið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins, ætlar að flytja lögheimili sitt í Norðausturkjördæmi en hann hefur lýst yfir vilja til að leiða lista flokksins í kjördæminu.

Á tvöföldu kjördæmisþingi, sem haldið verður  í Mývatnssveit þann 1. desember, verður framboðslistinn ákveðinn. Sigmundur Davíð og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður flokksins í kjördæminu stefna báðir á fyrsta sætið.

Í viðtali við Vikudag kemur fram að Sigmundur stefnir að flutningi lögheimilisins en hefur ekki tekið ákvörðun um hvar hann ætlar að búa í kjördæminu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert