Dalvík er á kafi í snjó í dag

Mikill snjór er nú á Dalvík.
Mikill snjór er nú á Dalvík. Ljósmynd/Fanney Davíðsdóttir

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndsyrpu er gríðarlegur snjór á Dalvík þessa stundina eftir veðurhaminn sem nú gengur yfir landið. Björgunarsveitarmenn voru að störfum við að aðstoða fólk við mokstur frá húsum og fleira.

Ekki voru allir ósáttir við snjóinn og börn fóru mörg út með snjóþoturnar sínar og nutu sín.

Sjón er sögu ríkari eins og má sjá á ljósmyndum Fanneyjar Davíðsdóttur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert