Telur dóminn ekki hafa fordæmisgildi

mbl.is/Hjörtur

Lýsing telur dóm héraðsdóms í morgun um gengistryggingu lána ekki hafa fordæmisgildi við endurútreikninga á vöxtum. Ennfremur er lögð áhersla á það í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu að það eigi ekki aðild að málinu heldur annað fjármálafyrirtæki auk þess sem dómurinn fylgi ekki forsendum Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. Þá hafi dómum undirréttar í slíkum málum oft verið breytt í Hæstarétti.

„Umrætt mál er höfðað í október 2011 og greinargerð Landsbankans skilað áður en  dómur  Hæstaréttar  féll  í  fyrsta  málinu um gildi fullnaðarkvittana. Landsbankinn  gat  því  ekki  tekið mið af þeim dómi í málatilbúnaði sínum. Afleiðing þessa er sú að ekki er tekið á þeim álitaefnum sem til stendur að leysa  með 11 dómsmálum í kjölfar dóms Hæstaréttar í febrúar sl. Lýsing var fyrsta  fjármálafyrirtækið  til að þingfesta slíkt mál í júní sl. og leggur áherslu á að fá niðurstöðu í það mál eins fljótt og unnt er,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að Lýsing  vænti  þess „að í samræmi við grundvallarreglur réttarríkisins fái félagið  notið  þeirra  stjórnarskrárvörðu  réttinda að fá úrlausn álitefna fyrir sjálfstæðum og óhlutdrægum dómstól án pólitískrar íhlutunar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert