Landhelgisgæslan hefur vakið athygli á að samfara slæmri veðurspá og um 972 mb loftþrýstingi verður óvenjumikil sjávarhæð næstu daga. Umráðamenn báta, skipa og hafna eru beðnir um að hafa varann á, sérstaklega suðvestan lands.
„Það er ljóst að stærsti straumurinn verður í fyrramálið. Það verður stærsti straumur ársins ásamt þeim sem verður eftir mánuð á nýju tungli. Í fyrramálið og á morgun verður 970 mb lægð skammt fyrir vestan landið. Loftþrýstingur verður hvað lægstur í kringum Ólafsvík, úti fyrir Patreksfirði og Rauðasandi,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Hann segir lágan loftþrýsting lyfta sjávarborðinu hærra. Sunnan lægðarmiðjunnar þar sem loftþrýstingur er ívið hærri muni sjávarborð einnig hækka vegna öldu- og vindáhlaðanda.
„Við erum heppin því á þessum tíma þegar stærsti straumur er þá hafa stundum komið djúpar lægðir með. Nú kemur djúp lægð en þó ekki sérlega, hún hefði getað verið dýpri miðað við aðdragandann og borið bæði meiri öldu- og vindáhlaðanda, sérstaklega hér vestanlands miðað við að vindurinn er vestanstæður,“ segir Einar.
Einar segir að menn þurfi vart að óttast mikinn atgang því öldugangur verði ekki það mikill þó bátar og skip muni standa hátt. „En segjum að ef lægðin fari aðra leið eða beri meiri vind með sér þá þarf lítið út af að bregða þegar allir þessir þættir koma saman.“