Vilja holdafar í stjórnarskrá
Stjórnlagaráði láðist að geta mismunar vegna holdafars, að mati Samtaka um líkamsvirðingu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Mikilvægt er að bæta holdafari við þau atriði sem talin eru upp undir ákvæði um jafnræði í frumvarp um ný stjórnskipunarlög, ef stjórnarskráin á að þjóna tilgangi sínum um vernd mannréttinda íslenskra samfélagsþegna. Þetta segja Samtök um líkamsvirðingu í athugasemd við frumvarpið.
Í athugasemd sem send var stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kemur fram að rannsóknir sýni að fordómar vegna holdafars séu einhverjir algengustu fordómar í vestrænum samfélögum. Þá staðfesti íslenskar rannsóknir að mismunun á grundvelli holdafars eigi sér stað í atvinnulífi hér á landi og dæmi séu um að fólki hafi verið meinað að ættleiða barn á grundvelli holdafarsins eins.
Þá segir í athugasemdinni, sem Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og formaður samtaka um líkamsvirðingu, skrifar undir, að rannsóknir bendi til að þessir fordómar fari vaxandi og þeir ógni líðan, atvinnuöryggi og lífsgæðum stórs hluta þjóðarinnar þar sem um tuttugu prósent þjóðarinnar teljast of feit. „Því er vert að árétta að það er ekki fámennur minnihlutahópur, sem stendur frammi fyrir þessu óréttlæti, heldur allt að fimmtungur þjóðarinnar.“
Í niðurlagi athugasemdarinnar er á það bent að Íslendingar hafi áður rutt brautir sem snerta mannréttindi, t.d. hvað varðar jafnrétti kynjanna og réttindi samkynhneigðra. „Það er ekki nema rökrétt að þeir ryðji brautina að þessu leyti líka. Verði þessu atriði bætt við stjórnarskrána munum við verða fyrst allra þjóða til að viðurkenna mismunun á grundvelli holdafars og binda það í stjórnarskrá okkar að slík mismunun sé ekki samþykkt.“
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson "...og stöðu að öðru leyti." -
Valdimar Samúelsson Verður fitan skorin að of holdamiklu fólki. Fær þá ekki ... -
Jóhann Elíasson HVAÐ KEMUR EIGINLEGA NÆST???????????
Innlent »
- Bjarni „góður maður og ábyrgur“
- „Hve lengi dugar svarið?“
- Með bréfdúfur í bakgarðinum
- Bændur bíða eftir betri spá
- Gera ekki upp á milli út frá kyni
- Söngglaður nýbúi breiðir úr sér
- „Ísland vill ekki um borð í Titanic“
- Margir spyrja um erfðaráðgjöf
- Fjárhæðin lækkuð um 90%
- Ingólfur greiði Arion til baka
- Bætur fyrir of langt gæsluvarðhald
-
„Tek við ágætu búi að mörgu leyti“
- Eiginmaður fv. ráðherra ákærður
- Borgin gætti jafnræðis
-
„Þú bara splæsir þessu saman“
-
Sigmundur Davíð fékk lyklana
- Ný ríkisstjórn formlega tekin við
- Tilkynnt um reyk í Ásholti
- Nauðgaði og hótaði
- Dómur mildaður yfir kynferðisbrotamanni
- 21 þýðingarstyrkur veittur
- Hafði áhrif á þrettán flugvélar
- Ólýsanlegt á toppi Everest
- Fagna fyrirhuguðum refsiaðgerðum
- 366 milljónir til 12 verkefna
- Veiddi kvótann á 12 sólarhringum
- Fyrrverandi ráðherra pælir í strætó
- Sækja armbandsúr á Snæfellsjökul
- Alvarleg slys orðið vegna sterkra vinda
- Versta kal á svæðinu í áratugi
- „Þakklátur fyrir tækifærið“
- Verður ekki vísað úr landi
- Héðinsfjarðargöng verða lokuð vegna æfingar
- Ókeypis mælingar hjá SÍBS
- 390 þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu
- Vísitalan hækkaði um 38% 2006-2010
- Standa vörð um hátekjuheimili
-
„Það vantar allar útfærslur“
- 30% nýnema við lögregluskólann konur
- Reyklaus áhöfn á Beiti NK
-
Síðasti ríkisráðsfundurinn
- Eyjamenn hafna hóteli
- Talaði í þrettán og hálfan tíma
- Fólkið í ríkisstjórn Íslands
- Gömul föt fá framhaldslíf
- Allt að tveggja tíma brottfarartöf
- Vélar fastar á Keflavíkurflugvelli
- Einungis þriðjungur gaf stefnuljós
- „Áfall að horfa á pabba berja mömmu“
- Lokað um Reykjahverfi
- „Ég er að fara að gjósa“
- Spilað til úrslita í Keflavík
- Phelps: Óráð að sækja um ESB
- Hálka á Mývatnsöræfum
- Ríkið meðvitað að skapa launamismun
- Skerðingar frá 2009 afturkallaðar
- Eldur logaði í kerru
- Komin í leitirnar
- Krefja KSÍ svara um HM í Katar
- Lýst eftir Birgittu Sif
- Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
- Umsókn um aðild að ESB
- Íslenskir Everestfarar
- Makríldeilan
- Hælisleitendur
























