Stjórnlagaráð

Rýna í stjórnlagaráðstillögurnar

21.5. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur fengið hóp lögfræðinga til þess að fara yfir tillögur stjórnlagaráðs með tilliti til lögfræðilegra atriða. Hópinn skipa Hafsteinn Þór Hauksson, Ragnhildur Helgadóttir, Oddný Mjöll Arnardóttir, Páll Þórhallsson og Guðmundur Alfreðsson. Meira »

Stjórnarskrármálið að skýrast

Valgerður Bjarnadóttir.
30.4. Framhald stjórnarskrármálsins skýrist í dag eða á morgun, að sögn Valgerðar Bjarnadóttur, formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Meira »

„Við gefumst ekki upp“

Valgerður Bjarnadóttir sagði stjórnarmeirihlutann ekki ætla að gefast upp á Alþingi í kvöld.
30.3. „Við gefumst ekki upp. Við munum halda áfram að vinna að gerð stjórnarskrárinnar í samvinnu og samráði við fólkið í landinu en ekki í bakherbergjum með einhverjum útvöldum. Sjálfstæðismenn stoppa okkur ekki í því,“ sagði Valgerður Bjarnadóttir í ræðu sinni á Alþingi rétt fyrir miðnætti. Meira »

Hiti í þingsal meðal þingmanna

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins situr undir þungum sökum á Alþingi nú.
29.3. Ásakanir ganga nú á víxl milli þingmanna á Alþingi og er hiti í þingsalnum. Þingflokksformenn stjórnarinnar reyndu að ná samkomulagi um að ljúka umræðunni svo greiða mætti atkvæði. Meira »

Þingfundi gæti lokið kl. 3 í nótt

Alþingi ræðir nú þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um Stjórnarskrá Íslands í sumar.
29.3. Álfheiður Ingadóttir, varaforseti Alþingis, upplýsti að ef allir þingmenn sem væru á mælendaskrá nýttu sér fullan ræðutíma tæki umræðan sem eftir væri um 180 mínútur, eða þrjá klukkutíma og að atkvæðagreiðslur tækju um 3 klukkutíma til viðbótar. Meira »

Kjósendur geti farið fram á þingrof

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
29.3. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í dag að hann teldi mun betra að ákveðinn fjöldi kjósenda gæti farið fram á þingrof en að geta krafist þess að ákveðin mál færu í þjóðaratkvæði. Önnur umræða fer fram í dag um þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði í sumar samhliða forsetakosningum um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Þingmenn sakaðir um klækjabrögð

Jón Gunnarsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Bjarni Benediktsson, þingmenn Sjálfstæðisflokks.
28.3. Fyrri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs lauk á þriðja tímanum. Málið gengur þó ekki til annarrar umræðu og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þar sem óskað var eftir atkvæðagreiðslu en þegar til hennar kom voru ekki nægilega margir þingmenn í þingsal. Meira »

Kvöldfundur um þjóðaratkvæðagreiðslu

27.3. Umræður eru hafnar á Alþingi um tillögu meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs. Samþykkt var á þingfundi að fundur mætti standa fram eftir kvöldi. Meira »

Spurning ekki í samræmi við gildandi lög

Eignarrétti á landi og auðlindum er skipað í lögum.
27.3. Kjósendum í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs er gert að taka afstöðu til álitaefnis sem ekki er í neinu samræmi við gildandi lög í landinu. Kemur sú afstaða fram í athugasemd sem Landssamtök landeigenda og Landssamband veiðifélaga hafa sent landskjörstjórn og framsend hefur verið stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Meira »

Verður þjóðaratkvæði í sumar?

25.3. Óvíst er hvort þjóðaratkvæði fari fram um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá næsta sumar en stefnt er að því að kosið verði um hana samhliða forsetakosningum sem fyrirhugaðar eru 30. júní næstkomandi. Meira »

Kjörstjórn ekki fengið erindið

Stjórnlagaráð kom saman til fjögurra daga fundar fyrr í mánuðinum.
24.3. Landskjörstjórn kom saman til fundar í fyrradag til þess að fara yfir spurningar sem til stendur að spyrja í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Málið nú orðið gott og gilt

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
22.3. „Þetta er bara eftir öðru hjá þessari ríkisstjórn. Hún er að lenda í algeru tímahraki með þetta stjórnarskrármál allt og þá á greinilega að reyna að redda sér með því að draga upp þetta frumvarp sem ég flutti á síðasta ári,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Meira »

Ögmundur með fyrirvara vegna þjóðaratkvæðagreiðslu

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
21.3. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag að hann gæti ekki stutt þingsályktunartillögu um að tillaga stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verði lögð í þjóðaratkvæði í sumar nema spurt væri um leið hvort þjóðin væri samþykk því að ekki yrði heimilt í nýrri stjórnarskrá að leggja mál er vörðuðu fjárhagslegar eða alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins í dóm kjósenda. Meira »

Engin ákvörðun tekin

Stjórnlagaráð að störfum.
15.3. Valgerður Bjarnadóttir, formaður eftirlits- og stjórnskipunarnefndar, segir að ekki sé búið að slá út þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá samhliða forsetakosningum í sumar eins og Vigdís Hauksdóttir þingmaður hélt fram í Facebook-færslu í fyrradag. Meira »

Þrír fulltrúar í stjórnlagaráði ekki með

Stjórnlagaráð kom saman í dag
8.3. Stjórnlagaráð kemur saman á ný klukkan tíu í dag í húsnæði menntavísindasviðs Háskóla Íslands til þess að ræða og síðan svara spurningum sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur beint til ráðsins varðandi drög þess að nýrri stjórnarskrá sem ráðið skilaði af sér síðastliðið sumar. Meira »
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Tillögurnar í „pottþéttan lagalegan búning“

3.5. „Við viljum leggja fram á næsta þingi frumvarp til nýrrar stjórnarskrár. Við erum með tillögu stjórnlagaráðsins, það hefur komið fram gagnrýni um að það séu einhver lagatæknileg atriði sem þurfi að laga, það þurfi líka að laga greinargerðina, og við ætlum nú að fá fólk sem hefur sérþekkingu í lögfræði til þess að yfirfara þessa tillögu.“ Meira »

„Aldrei heyrt annað eins rugl“

Sigurður Líndal.
3.4. Stjórnlagaráðsfulltrúinn Gísli Tryggvason fullyrti m.a. í viðtali við Morgunblaðið á laugardag að yrðu tillögur ráðsins samþykktar þyrfti ekki að greiða mönnum bætur þótt veiðikvóti yrði tekinn af þeim. Sigurður Líndal lagaprófessor er vægast sagt ósammála Gísla. Meira »

Heimaseta sama og samþykki

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.
30.3. „Ótrúlega einbeittur vilji Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í að koma í veg fyrir að almenningur láti í ljós álit sitt á nýrri stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu. Málþóf þeirra sýnir hversu raunveruleg fyrirlitning þeirra á lýðræði og almannavaldi er. Þessu megum við aldrei gleyma. Við munum fá nýja stjórnarskrá,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Meira »

Útséð um að klára málið

Valgerður Bjarnadóttir
29.3. „Nei, ég er nú hrædd um að það sé útséð um það,“ sagði Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Meira »

„Þetta er alger aumingjaskapur“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðustóli á Alþingi.
29.3. „Ég held að það sé kominn tími til þess að þeir stjórnarliðar sem hér eru með frammíköll og skæting komi hér upp og tali hreint út um það hvort að þeir vilja að tillögur stjórnlagaráðsins verði hin nýja íslenska stjórnarskrá,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »

Inngangi bætt við og fjórum spurningum breytt

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fundar.
29.3. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur gert tillögur að breytingum á tillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu.  Meira »

Ekki spurt beint um tillöguna

Ómar Ragnarsson ávarpar stjórnlagaráð.
27.3. „En það er út af fyrir sig rétt að í spurningunni, sem á að leggja fyrir kjósendur, er ekki spurt beint um álit kjósenda á 34. greininni eins og hún liggur fyrir með öllum gögnum, sem henni tengjast,“ segir Ómar Ragnarsson, stjórnlagaráðsmaður með meiru, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Vill að orðalagi verði breytt

Landskjörstjórn leggur áherslu á að skýra þurfi betur tillöguna.
27.3. Landskjörstjórn gerir verulegar athugasemdir við orðalag spurninga í tillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs. Landskjörstjórn segir ekki hægt að útiloka hættu á ruglingi og leggur til að orðalagi verði breytt. Meira »

Gagnrýnir þingið

Stefanía Óskarsdóttir.
26.3. Dr. Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði, segir Alþingi setja ofan með því að spyrja almenning í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort þingmenn megi leggja fram frumvarp til breytinga á stjórnarskrá. Meira »

Vinnu stjórnlagaráðs hent út um gluggann

Valgerður Bjarnadóttir segist vona að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur sjtórnlagaráðs fari fram meðfram forsetakosningum í lok ...
25.3. Fram kom í umræðum í Silfri Egils að ef ekki yrði samþykkt að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs með forsetakosningunum í lok júní yrði blásið til atkvæðagreiðslu í haust. Meira »

Leggja mat á spurningarnar

22.3. „Hlutverk okkar er að veita umsögn um spurningarnar. Lögin kveða á um það. Þetta er frekar svona tæknilegs eðlis,“ segir Freyr Ófeigsson, formaður landskjörstjórnar og fyrrverandi héraðsdómari, í samtali við mbl.is. Meira »

Ómarkviss og ruglingsleg leið

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að störfum.
22.3. „Mér finnst sú leið sem þarna er valin vera ómarkviss og tel að það sé hætta á að hún geti leitt til þess að niðurstöður verði mjög ruglingslegar og teygjanlegar í allar áttir.“ Meira »

Stjórnarskrármálið í tímaþröng

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
19.3. Leggja þarf fram nýja þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs. Verður hún að hljóta samþykki Alþingis fyrir mánaðarlok ef ætlunin er að halda atkvæðagreiðsluna samhliða forsetakosningum í lok júní, en slík tillaga hefur enn ekki verið lögð fram. Meira »

Valkostir stjórnlagaráðs raska ekki fyrri tillögu

Stjórnlagaráð fundar í Kennaraháskólanum.
12.3. Stjórnlagaráð lauk störfum sínum í gær eftir að hafa komið aftur saman til þess að svara þeim spurningum sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis beindi til þess. Ráðið afhendir nefndinni svör sín í dag. Meira »

22 fulltrúar af 25 þegar boðað þátttöku

Stjórnlagaráð á fundi.
2.3. 22 fulltrúar stjórnlagaráðs hafa þegar boðað þátttöku sína á fund ráðsins 8. mars næstkomandi en 25 fulltrúar eru í ráðinu. Tveir eru erlendis, Pawel Bartoszek og Salvör Nordal. Frestur til að tilkynna þátttöku rennur út síðdegis. Meira »
[ Fyrri síða | Næsta síða » ]

finnur.is