Málflutningurinn mótsagnakenndur

Ólína Þorvarðardóttir segir málflutning fulltrúa atvinnulífsins mótsagnakenndan.
Ólína Þorvarðardóttir segir málflutning fulltrúa atvinnulífsins mótsagnakenndan. Eggert Jóhannesson

Ólína Þorvarðardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í atvinnuveganefnd, segir málflutning fulltrúa ASÍ og SA í málefnum rammaáætlunarinnar mótsagnakenndan. Menn geti ekki krafist í einu orðinu að mál sé í faglegum farvegi en krafist þess í hinu að hagsmunaaðilar fái að fara fingrum um það.

Ólína segir að ekki hafi verið miklar fréttir af sameiginlegum fundi umhverfis- og samgöngunefndar og atvinnuveganefndar sem haldinn var í morgun, sem fulltrúar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins sóttu. Þeir hafi þar endurtekið rangfærslur sínar um vanefndir á samkomulagi á milli aðila vinnumarkaðarins við ríkið sem ríkisstjórnin hefði hrakið.

Hún segir að fulltrúar atvinnulífsins hafi viljað blanda rammaáætluninni í það mál. „En rammaáætlun er hlutlaust plagg sem gengur út á það að taka fræðilega og faglega afstöðu til þess hvað af virkjunarkostum er nýtanlegt að teknu tilliti til umhverfissjónarmiða. Áætlunin er ekki atvinnustefna og hún er ekki orkunýtingarstefna heldur undirgagn sem á að liggja til grundvallar slíkri stefnumótun,“ segir Ólína.

Málið í opnu ferli allan tímann

Ólína segir að sér hafi heyrst á fulltrúum atvinnulífsins og ASÍ að þeir hafi ætlast til þess að málið hefði verið rætt við þá áður en að það kæmi fyrir þingið. Tilgangurinn með því væri þá væntanlega sá að þeir gætu farið höndum um það. „Ég spyr: Hefði það verið hlutlaus og fagleg aðferðafræði að gera slíkt? Ég tel ekki. Ég tel að það hafi verið farsælt að það skyldi vera staðið fast við þann feril sem Alþingi ákvað með lögunum um rammaáætlun að málið yrði í.“ Hún hafnar því fullyrðingum um að ríkisstjórnin hafi sett málið í einhvern skuggaferil og gert það að pólitísku bitbeini. Þvert á móti hafi málinu verið haldið í opnu ferli allan tímann.

Ólína tekur fram að eftir að tillögur verkefnisstjórnarinnar komu fram hafi málið verið sett í opinn umsagnarferil. Ráðherrar hafi síðan tekið mið af þeim umsögnum og ábendingum sem hafi borist og lagfært ákveðna hluti. „Þeir tóku til dæmis tvo kosti út úr biðflokki sem áttu ekki að vera þar lögum samkvæmt og settu í biðflokk nokkra virkjunarkosti sem frekari rannsóknir og upplýsingar vantar um. Þetta var að mínu mati mjög fagleg og ábyrg nálgun og nú er málið til efnislegrar meðferðar í þinginu.“

Ólína segir að fulltrúar atvinnulífsins geti ekki kvartað undan skorti á samráði. „SA og ASÍ hafa fengið að koma að þessu máli, þeir hafa komið á fundi umhverfis- og samgöngunefndar ítrekað vegna málsins og enginn annar umsagnaraðili hefur fengið greiðari aðgang að nefndinni í þessu ferli þannig að þeir hafa ekki undan neinu að kvarta,“ segir Ólína og bætir við: „Málflutningur þeirra er að mínu viti mótsagnakenndur, hann gengur ekki alveg upp. Menn geta ekki í einu orðinu krafist þess að ferill sé faglegur og opinn og í hinu orðinu farið svo fram á að honum sé kippt úr þeim farvegi og gerður hagsmunatengdur og lokaður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert