Tillaga um ESB-hlé lögð fram

stækka

AFP

Tillaga meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis var tekin formlega fyrir á fundi nefndarinnar í morgun en tillagan var lögð fram á fundi hennar 18. desember síðastliðinn. Þá var óskað eftir því að tillagan yrði tekin fyrir á næsta fundi utanríkismálanefndar sem til stóð að halda 20. desember en þeim fundi var hins vegar aflýst af formanni nefndarinnar, Árna Þór Sigurðssyni, áður en til hans kom.

Tillagan er lögð fram af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd auk Jóns Bjarnasonar, þingmanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, en hún gengur út á að gert verði hlé á viðræðunum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þær ekki hafnar á ný nema að undangengnu samþykki í þjóðaratkvæði.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í utanríkismálanefnd, segir í samtali við mbl.is að ákveðið hafi verið að taka tillöguna fyrir á næsta fundi nefndarinnar sem hún segist aðspurð gera ráð fyrir að verði eftir helgi. Þá verði tillagan líklega lögð fram í nafni meirihluta nefndarinnar en ekki nefndinni í heild.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

100 milljónir í eldfjallarannsóknir

Eldgos
11:06 Vísindasamfélagið, orkufyrirtæki og Orkustofnun hafa gert með sér samkomulag um að verja um 100 milljónum króna til rannsókna á samspili vatns og kviku í rótum eldfjalla. Meira »

Lögreglan leitar manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls ...
11:02 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Meira »

„Klassískt íslenskt sumarveður“

Veðurstofan spáir hæglætisveðri um helgina. Búast má við skúrum í flestum landshlutum.
10:57 „Þetta er mjög klassískt íslenskt sumarveður. Hægur vindur og það skiptast á skin og skúrir,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, spurð út í helgarveðrið. Hægar norðlægar áttir verða ríkjandi og má búast við skúrum víðast hvar. Hiti verður á bilinu 10 til 15 stig. Meira »

Lonely Planet mælir með Norðurlandi

Dettifoss er vinsæll meðal ferðamanna.
10:25 Norðurland er einn af tíu áfangastöðum í Evrópu sem ferðavefurinn Lonely Planet mælir með að fólk heimsæki í ár. Ferðamenn megi ekki láta töfra landshlutans framhjá sér fara; þar sé að finna fallega fossa og hraunbreiður, hægt að fara í jarðböð á Mývatni og í fuglaskoðun í Grímsey. Meira »

Gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls lokað í kvöld

08:41 Í kvöld verða gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls malbikuð. Gatnamótin verða því lokuð frá frá kl 22:00 og gatnamótin opna kl 6:30. Hjáleiðir verða settar upp, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Gestir undir smásjá spæjaranna

08:17 Edward Snowden varð ósáttur við vinnubrögð bandarísku öryggisstofnunarinnar, NSA, og afhenti fjölmiðlum gögn sem hann segir að sanni að stjórnvöld geti komist yfir allar upplýsingar um almenning sem þeim henti hverju sinni. Meira »

Sætir áfram gæsluvarðhaldi

Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi í rúmar sex vikur.
10:20 Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa orðið nágranna sínum að bana á Egilsstöðum 7. maí sl. var framlengt um fjórar vikur 14. júní sl. Rannsókn málsins stendur enn yfir að sögn lögreglunnar á Eskifirði. Meira »

14.400 undirskriftir

08:33 Rúmlega 14.400 manns hafa skrifað undir áskorun á netinu til Alþingis um að samþykkja ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um veiðigjaldið. Meira »

Flugan flýgur til Frakklands

Bryndís Björgvinsdóttir
07:39 Franskt útgáfufyrirtæki hefur keypt útgáfuréttinn á bók Bryndísar Björgvinsdóttur, Flugan sem stöðvaði stríðið.   Meira »

Hreinsuðu upp eftir árekstur

06:41 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í gærkvöldi vegna áreksturs í Mjóddinni.  Meira »

Þrír óskuðu eftir gistingu

Fangaklefar lögreglunnar
06:14 Sex gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar af eru þrír sem óskuðu eftir því að fá gistingu í nótt. Þrír eru hins vegar í fangaklefa þar sem þeir verða yfirheyrðir síðar í dag vegna óafgreiddra mála. Meira »

Hönnun TARK valin við stækkun FSu

Fjölbrautarskóli Suðurlands
05:47 TARK - Teiknistofan Arkitektar hlaut fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um stækkun á verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Meira »

Lést í bílslysi í Skötufirði

Dröfn Guðmundsdóttir
05:30 Konan sem lést í bílslysi í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi 13. júní sl. hét Dröfn Guðmundsdóttir, til heimilis í Flétturima 12 í Reykjavík. Dröfn lætur eftir sig eiginmann, Sigurð Skúlason, og fjögur börn, en fyrir átti Sigurður tvo syni. Meira »

Sleppa betur með ræktun

05:30 „Refsingar fyrir ræktun á kannabis eru mun vægari heldur en refsingar fyrir innflutning á efninu,“ segir Kjartan Ægir Kristinsson, laganemi við Háskóla Reykjavíkur, í nýlegri BA-ritgerð. Daði Kristjánsson, saksóknari hjá Ríkissaksóknara segir ákæruvaldið í fíkniefnamálum oft vera í höndum lögreglu. Meira »

Leggja blóm að leiði Bríetar

Blómsveigur lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur á kvenréttindadaginn í fyrra.
05:30 Kvenréttindadagurinn er í dag og af því tilefni mun Kvenréttindafélag Íslands leggja blómsveig að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Meira »

Áfram rætt um makríl

05:30 Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir viðræðum sínum við Mariu Damanaki, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, og öðrum viðræðum sem hafa átt sér stað vegna stöðu mála, á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í gær, að sögn Birgis Ármannssonar, formanns nefndarinnar. Meira »

Krefjast skaðabóta vegna útgerðarkaupa

Vinnslustöðin Vestmannaeyjum
05:30 Tekið var fyrir mál Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum gegn fyrrverandi stjórnarmönnum fyrirtækisins, þeim Gunnari J.  Meira »

Háskaleg ljósmyndataka ferðamanna

Dettifoss í gær
05:30 „Ég var staddur þarna svolítið frá, að taka mynd af fossinum með aðdráttarlinsu þegar ég sá fólkið við fossinn,“ sagði Óttar Sveinsson sem tók meðfylgjandi mynd við Dettifoss í gær. Meira »
Einkaflugmenn - Gisting í Tjaldbót-2013
Eigum laust lítið sumarhús á suðurl. fyrir smáfjölskyldur. Flogið á daginn, gri...
LifeWave tæknin hjálpar mörgum með gigt. !!!
LifeWave tæknin hefur hjálpað mörgum með gigt. Það nýjasta er að sjúkrahús í ...
Til sölu Fallegt 48 fm sumarhús og lóð.
Fallegt 48,3 fm sumarhús ásamt 6 fm. útiskúr, á 2.015,0 fm eignarlóð í landi Syð...
BÍLAVARAHLUTIR Á HAGSTÆÐU VERÐI
Eigum fyrirliggjandi PÚSTKERFI í flestar tegundir bifreiða. Einnig STÝRISLI...
 
Starfsmaður óskast í 50% starf
Skrifstofustörf
Dýraverndarsamband Íslands leitar að st...
Organisti / kórstjóri
Listir
Organisti og kórstjóri Laus er s...
Skipulagsmál í rangárþingi

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ...
Jarðfræðingur og starf á rannsóknastofu
Sérfræðistörf
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi ...