Olíuleit gegn stefnu VG

Þingflokkur VG á fundi.
Þingflokkur VG á fundi. mbl.is/Ómar

Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi ráðherra og einn hugmyndafræðinga VG í umhverfismálum, segir að áform um olíuleit á Drekasvæðinu gangi í berhögg við stefnu VG í loftslagsmálum.

„VG hefur einn flokka verið með ákveðna stefnu í loftslagsmálum og hún hefur heldur betur riðlast með útgáfu þessara sérleyfa,“ segir Hjörleifur.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir hann fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu umhverfismála og að allir flokkar þyrftu að skoða sína stöðu í því samhengi. Spurður um þörf fyrir nýjan umhverfisflokk segist Hjörleifur vonast til að menn vakni og á það verði að reyna hvort það gerist í núverandi flokkum eða með nýjum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert