Vilborg eldaði kartöflur með beikoni

Vilborg Arna Gissurardóttir, Suðurpólfari.
Vilborg Arna Gissurardóttir, Suðurpólfari.

Áheitasöfnun pólfarans Vilborgar Örnu Gissurardóttur í þágu Lífs - styrktarfélags kvennadeildar Landspítalans tók kipp á síðustu dögum. Nú hafa safnast um 6,5 milljónir króna, þar af um helmingur síðustu fimm daga. 

Vilborg Arna komst á suðurpólinn um kl 22.30 að íslenskum tíma í gærkvöld, fyrst Íslendinga sem þangað fara einir síns liðs. Mjög þurr snjór, sem gerði færið stamt, lítið skyggni og mikil ofankoma einkenndi aðstæður síðasta göngudag hennar. Þá þurfti hún einnig að þræða á milli loftskeytamastra sem staðsett eru við pólinn í þágu vísinda og rannsókna.

Tilfinningaþrungin stund að nálgast suðurpólinn

Vilborgu er efst í huga þakklæti til allra þeirra Íslendinga sem hafa stutt hana í þessari vegferð hennar. Stuðningurinn hafi skipt hana sköpum og ekki síst þær fregnir hversu vel hafi safnast í áheitasöfnun hennar. Hún segir það hafi verið tilfinningaþrungin stund að nálgast suðurpólinn og hún hafi ýmist hlegið eða grátið yfir að ná takmarki sínu. Vilborg gekk í 60 daga, alls 1.140 kílómetra.

Eftir að Vilborg náði takmarki sínu í gærkvöld sló hún upp tjaldi til síðustu næturgistingar á suðurpólnum og eldaði sér kartöflurétt með beikoni. Hún kvaðst vera þreytt eftir göngu dagsins en ætlaði engu að síður að nota tímann fram að svefni til að skoða rannsóknarstöðina á suðurpólnum, segir í upplýsingum frá talskonu hennar, Elínu Sveinsdóttur. 

Mun taka nokkra daga að átta sig

Draumur Vilborgar um að ganga á suðurpólinn er langþráður og segir Vilborg að það muni eflaust taka sig nokkra daga að átta sig á því að draumurinn sé loks á enda. Framundan sé að jafna sig á langferðinni sem hafi bæði tekið á líkamlega og andlega.

Enn er hægt að heita á síðustu spor Vilborgar. Símanúmer söfnunarinnar er 908 15 15 og dragast þá 1500 krónur af símreikningi. Einnig er hægt að heita á spor hennar með frjálsum framlögum á heimasíðu Vilborgar www.lifsspor.is.

Dvelur á suðurskautinu fram yfir helgi

Vilborg fer með flugi frá suðurpólnum síðdegis í dag til Union Glacier, en þar er að finna bækistöðvar langflestra suðurpólsfara. Þar dvelur hún fram yfir helgi eða þar til hún nær flugi til Punta Arena syðst í Síle en þangað flaug hún upphaflega frá Lundúnum í byrjun nóvember á síðasta ári.

Útlit er fyrir að Vilborg Arna komi loks heim til Íslands um aðra helgi.

Vilborg Arna Gissurardóttir 1.140 km á 60 dögum.
Vilborg Arna Gissurardóttir 1.140 km á 60 dögum. mbl.is
Vilborg Arna Gissurardóttir gisti í tjaldi sínu á Suðurpólnum í …
Vilborg Arna Gissurardóttir gisti í tjaldi sínu á Suðurpólnum í nótt.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert