„Munur að heita Jón eða Jón Ásgeir“

Jón Ásgeir Jóhannesson segir mun á því að heita Jón …
Jón Ásgeir Jóhannesson segir mun á því að heita Jón eða Jón Ásgeir í yfirlýsingu um dóm Hæstaréttar yfir honum. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Ég get ekki annað en fagnað í dag þegar Baugsmálinu líkur loks eftir 11 ára málaferli. Það er í sjálfu sér ákveðinn sigur fyrir okkur.  Stórglæpurinn fannst ekki og enginn fer í fangelsi.  Þessi sneypuför ákæruvaldsins hefur kostað samfélagið hundruð milljóna sem það fær aldrei til baka,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum í kvöld.

Jón Ásgeir var í dag dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 62 milljóna króna sektar vegna meiri háttar skattalagabrota.

„Sektin sem við greiðum eru smámunir miðað við þá upphæð sem allt þetta rugl ákæruvaldsins hefur kostað íslenskt samfélag.  Hæstiréttur fordæmdi bæði dráttinn á rannsókn ákæruvaldsins auk meðferðar héraðsdóms á málinu og það segir sína sögu,“ segir í yfirlýsingunni.

Segir viðvaningsleg vinnubrögð rekin áfram af tilfinningalegri heift

Þar segir enn fremur: „Það eru skelfilegt að í þróuðu réttarríki séu viðvaningsleg vinnubrögð með þeim hætti að þau eru rekin áfram af tilfinningalegri heift til einstaklinga og fyrirtækja.
Í rúman áratug hefur ákæruvaldið haldið því fram að hér væri slíkur stórglæpur á ferð að 6 ára fangelsi væri í raun of lítill dómur. Útkoman er áfellisdómur yfir ákæruvaldinu og lagalegri þekkingu þeirra einstaklinga sem hafa rekið málið.  Ákæruvaldið hefur aldrei lagt eins mikið undir í neinu máli og í Baugsmálinu og aldrei  borið eins lítið úr bítum. Þessu máli er þó ekki alveg lokið því ég mun áfram reka mál mitt fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu og vona að þar muni réttlætinu verða fullnægt.

Látinn sæta ábyrgð fyrir vinnu sérfræðinga sem unnu fyrir hann

Mér finnst merkilegt við þennan dóm að ekki sé hægt að treysta á vinnu sérfræðinga við gerð skattskila fyrirtækja. Í málinu lá fyrir að gerð voru sérfræðismistök við framtalsgerð, sem ég bar ekki ábyrgð á, en er með dómnum látinn sæta ábyrgð fyrir vinnu sérfræðinga sem unnu fyrir mig.  Ég held að allir framkvæmdastjórar og stjórnarmenn landsins muni hugsa stöðu sína í framhaldi af þessum dómi.

Grunaði að ekki væri allt með felldu í Hæstarétti

Mig var farið að gruna að allt væri ekki með felldu í Hæstarétti, þegar þeir kváðu upp þann dóm um daginn að Björn Bjarnason þyrfti ekki að greiða mér miskabætur, þrátt fyrir að hann hefði brotið gegn hegningarlögum og ummæli hans voru dæmd dauð og ómerk. Slíkur dómur hefur aldrei áður verið kveðinn upp hér á landi. Já það er munur að heita Jón eða Jón Ásgeir.“

Jón Ásgeir Jóhannesson og Gestur Jónsson verjandi hans.
Jón Ásgeir Jóhannesson og Gestur Jónsson verjandi hans. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert