Björn braut ekki siðareglur

Akureyri
Akureyri mbl.is/Sigurður Bogi

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað í máli þar sem Björn Þorláksson ritstjóri á Akureyri-vikublað var kærður fyrir umfjöllun sína um dagföður á Akureyri undir yfirskriftinni „Sýknaður af níði passar börn“, sem birtist íblaðinu 18. janúar sl. Siðanefnd telur að Björn hafi ekki brotið siðareglur BÍ í umfjöllun sinni.

 Í fréttinni sagði að karlmaður sem sýknaður hefði verið af kynferðisbroti bæði fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra og í Hæstarétti árið 2011 ynni sem dagforeldri.

Úrskurður siðanefndar BÍ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert