Össur: FBI ekki samkoma kórdrengja

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. mbl.is/Eva Björk

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að ekkert lögreglulið komi til Íslands til að hefja yfirheyrslu yfir íslenskum ríkisborgara án þess að það liggi fyrir skilgreind og rétt fram komin beiðni um réttaraðstoð.

Þetta sagði Össur í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag, en hann var spurður út í málefni bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) hér á landi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, bar fram fyrirspurnina.

„Ég tel eins og þetta mál var lagt upp fyrir mér að þá hafi slík beiðni ekki legið fyrir. Ég tel það algjörlega af og frá að líta svo á að heimsókn þeirra hingað, sennilega sex vikum fyrr, með leyfi íslenskra yfirvalda til þess að kanna öryggisvarnir í tölvukerfum, það hafi náð yfir það að koma síðan aftur nokkrum vikum síðar og hefja yfirheyrslur yfir einstakling sem virtust beinast fyrst og fremst að WikiLeaks,“ sagði Össur.

Þorgerður segir að afskipti utanríkisráðherra hafi ekki verið til þess fallin að tryggja réttarhagsmuni þess einstaklings sem um ræðir, heldur að rýra hans hagsmuni. Hún segir að íslensk lög séu mun skýrari hvað það varðar að þeir sem yfirheyri hverju sinni verði að gæta hagsmuna þess sem sé yfirheyrður. Í Bretlandi og í Bandaríkjunum sé þessu farið með öðrum hætti en á Íslandi.

„Þess vegna er mikill munur á íslenskum lögum og bandarískum lögum, og ég tel að með inngripi utanríkisráðherra hafi m.a. hagsmunir þessa einstaklings frekar verið fyrir borð bornir heldur en hitt,“ sagði Þorgerður.

„Það er nú ekki eins og FBI sé einhverskonar samkoma kórdrengja,“ sagði Össur þegar hann svaraði öðru sinni.

„Hingað vaða ekki erlend lögreglulið til þess að yfirheyra íslenska borgara án þess að hafa þar til bær leyfi samkvæmt lögum og alþjóðlegum samningum frá íslenskum yfirvöldum,“ sagði Össur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert