Er Hæstiréttur óskeikull?

Tryggvi Jónsson
Tryggvi Jónsson

„„Nú er lokadómurinn í svokölluðu Baugsmáli nýfallinn í Hæstarétti. Eðlilega hefur verið fjallað um dóminn í fjölmiðlum og í bloggheimum og sitt sýnist hverjum. Líka mér,“ segir Tryggvi Jónsson, endurskoðandi og fyrrv. forstjóri Baugs, í grein í Morgunblaðinu í dag.

Í grein sinni segir Tryggvi m.a.: Sá rúmi áratugur sem Baugsmál hafa staðið yfir hefur vissulega verið erfiður á margan hátt, en hann hefur líka verið sérstaklega lærdómsríkur, ekki síst hvað varðar stöðu réttarfars, fjölmiðlunar og lögregluvalds í íslensku samfélagi. Kannski virka þessi skattamál ekki síst undarleg fyrir mig því ég sjálfur, óafvitandi, hóf þá vegferð gegn mér.

Fyrir tæpum áratug sendi ég ríkisskattstjóra bréf og óskaði leiðréttingar á tilteknum atriðum í skattframtölum mínum. Sú ósk er nú að koma í bakið á mér með óvæntum hætti eins og ég mun rekja hér nánar. Efnislega er ég sakfelldur fyrir að leiðrétta framtöl og greiða skatta og skyldur.“

Síðar í greininni segir forstjórinn fyrrverandi: „Auk dóma yfir eigin framtali, sem nefndir eru hér að framan, fékk ég dóm sem forstjóri Baugs vegna skattskila félagsins. Í lok maí 2002 ákvað þáverandi stjórnarformaður að gefa ekki kost á sér áfram, en hann tilkynnti þessa ákvörðun sína daginn fyrir aðalfund Baugs. Var því ákveðið í skyndi með lykilhluthöfum að þáverandi forstjóri yrði stjórnarformaður og ég tæki að mér starf forstjóra. Daginn eftir fór ég í sumarfrí með fjölskyldu minni.

Meðan ég var í fríi gaf fráfarandi forstjóri fyrirmæli um 8 millj. kr. greiðslu til eins af lykilmönnum félagsins til, að því er mér skildist síðar, að gera upp bónusgreiðslu við hann, en ekki var haldið eftir staðgreiðslu af útborguninni. Ég vissi hvorki um bónusrétt viðkomandi stjórnanda né um greiðsluna til hans. Vitneskjuna fékk ég eftir að Baugsmálið hófst og um það er enginn ágreiningur. En sem forstjóri bar ég ábyrgð, þó svo að mér hefði ekki verið kunnugt um greiðsluna. Ég fellst á það. En hvort er þetta „gáleysi" hjá mér að vita ekki um það sem leynt fór eða „stórkostlegt gáleysi"? Skiptir það máli? Já. Gáleysi er ekki saknæmt en stórkostlegt gáleysi er það.“

 Lokaorð Tryggva: „Ég hef gert mín mistök í gegnum tíðina og fæst okkar eru fullkomin. Við erum þrátt fyrir allt mannleg. Hæstiréttur er undir miklu álagi, er samansettur af fólki og fólk er mannlegt og breyskt. Hæstiréttur er því auðvitað ekki óskeikull í sínum störfum frekar en aðrir. Dómarar hafa ekki alltaf rétt fyrir sér þótt þeir eigi lokaorðið í réttarkerfinu. Ég breyti ekki niðurstöðunni með þessum greinarskrifum mínum, en vona að þau hafi komið mínum sjónarmiðum á framfæri við lesendur.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert