„Hvers vegna er enn einn karlinn settur í ritstjórastól?“

Steinunn Stefánsdóttir.
Steinunn Stefánsdóttir.

Félag fjölmiðlakvenna vill fá skýringar á því hvers vegna fjölmiðlafyrirtækið 365 hafi talið rétt að semja um starfsloka Steinunnar Stefánsdóttur sem aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins. Félagið harmar brotthvarf Steinunnar úr forvarðarsveit blaðsins.

Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á fundi um stöðu kvenna í fjölmiðlum sem var haldinn í kvöld, að frumkvæði Félags fjölmiðlakvenna. Hún er svohljóðandi:

„Félag fjölmiðlakvenna biður um skýringar á því hvers vegna fjölmiðlafyrirtækið 365 taldi rétt að semja um starfslok Steinunnar Stefánsdóttur sem aðstoðarritsstjóra Fréttablaðsins. 

Steinunn hefur staðið sem klettur á Fréttablaðinu þau tólf ár sem blaðið hefur komið út. Hún hefur starfað sem aðstoðarritsstjóri á sama tíma og Kári Jónasson, Þorsteinn Pálsson, Jón Kaldal og Ólafur Stephensen vermdu ritstjórastólinn. Hvers vegna kjósið þið forráðamenn 365 að setja enn einn karlinn, Mikael Torfason, í ritstjórastól og er virðist á kostnað hennar?

Stjórn Félag fjölmiðlakvenna harmar þá niðurstöðu að Steinunn víki úr forvarðarsveit Fréttablaðsins. Staða kvenna í efstu stöðum ritstjórna dagblaða og annarra fréttamiðla er rýr. Félag fjölmiðlakvenna telur að nú sé kominn tími til að gera breytingar þar á og fer fram á að konum í áhrifastöðum innan fjölmiðla verði fjölgað. Úr hæfum hópi er að velja.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert